fbpx
Mánudagur 04.maí 2026
Fréttir

Fjölgun opinberra starfsmanna – Fjölgunin mest hjá sveitarfélögunum en ríkið bætir við heilbrigðisstarfsfólki

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 4. maí 2026 19:30

Efnahags- og fjármálaráðuneytið. Mynd: Stjórnarráðið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Opinberum starfsmönnum fjölgaði um 1.250 manns á einu ári, eða frá febrúar 2025 fram til febrúar 2026. Morgunblaðið vakti athygli á þessu í apríl og greindi frá gagnrýni þingmanna stjórnarandstöðunnar sem beindist að „stjórnvöldum sem virðast ekki ráða við að stilla umfangi kerfisins í hóf þegar aðstæður kalla á aðhald,“ eins og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins komst að orði. Guðrún sakaði ríkisstjórnina um að tala fyrir aðhaldi en að sama tíma framkvæma útþenslu: „Hún talar um baráttu við verðbólguna en stækkar kerfið“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sagði þetta uggvænlega þróun þar sem æ fleiri væru á framfæri hins opinbera á meðan þeim fækkar sem standa undir kostnaðinum. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði ekkert geta kallað á fjölgun opinberra starfsmanna um 1.250 manns á einu ári og kallaði hann eftir auknu gagnsæi og sagði málið merki um „mikið agaleysi í rekstri hins opinbera“.

Ekki eru þó allir opinberir starfsmenn á vegum ríkisins, en undir þann flokk falla líka starfsmenn sveitarfélaganna. Af þessum 1.250 störfum voru aðeins um 40 prósent vegna fjölgunar starfsmanna hjá ríkinu og af þeim voru flest stöðugildi, eða 87 prósent, vegna heilbrigðiskerfisins.

Í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn DV segir:

„Af þessum fjölda eru um 500 hjá ríki. Af þeim stöðugildum eru um 440 á heilbrigðisstofnunum eða um 87%. Þetta eru að meginstofni til læknar, sérnámslæknar, hjúkrunarfræðingar og starfsfólk í umönnun á LSH og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Þessi fjölgun er í samræmi við stefnu stjórnvalda um bætta mönnun í heilbrigðiskerfinu til að koma til móts við þarfir almennings.“

Guðrún Hafsteinsdóttir sagði það veikleikamerki að ríkisstjórnin ætlaði sér aðeins að fækka um 200 störf á næsta ári og að það væri ekki trúverðugt svar við þróun þar sem fjölgun nam 1.250 störfum á einu ári.

Ráðuneytið tekur fram að Guðrún vitni þarna til fyrirhugaðra aðhaldsaðgerða en þar er lögð áhersla á að verja framlínufólk í heilbrigðiskerfinu. Boðuð hækkun snýr að öðrum stofnunum ríkisins en heilbrigðisstofnunum og er markmiðið að fækka starfsfólki en að þjónustan verði sú sama eða betri með aukinni skilvirkni.

Þar með liggur fyrir að ríkið ber ábyrgð á um 500 störfum af þessari fjölgun en sveitarfélögin bera ábyrgð á um 750 störfum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hafa tekið það úr skólanum vegna hinseginfræðslu

Foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hafa tekið það úr skólanum vegna hinseginfræðslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir umsáturseinelti – Hefur verið með þráhyggju gagnvart sömu konunni í 14 ár

Sakfelldur fyrir umsáturseinelti – Hefur verið með þráhyggju gagnvart sömu konunni í 14 ár
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns