

En samkvæmt frétt The Guardian þá þykir samtökum ítalskra lækna ekki nógu langt gengið og hvetja til enn harðari aðgerða því sjúkrahús séu orðin full og erfitt sé að finna pláss fyrir kórónuveirusmitaða sjúklinga.
Sjúkrabílar þurfa að fara í röð við bráðamóttökur í mörgum bæjum og borgum og fólk hefur þurft að sætta sig við að vera í bílum sínum á meðan það fær meðferð við COVID-19. Dæmi er um 78 ára konu sem þurfti að bíða í sjúkrabíl í 26 klukkustundir áður en hægt var að taka hann inn á sjúkrahús.
Ítalía nálgast nú eina milljón smita frá upphafi heimsfaraldursins og rúmlega 41.000 hafa látist af völdum COVID-19 sem er mesti fjöldinn í einu landi á meginlandi Evrópu.