fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Pressan

Metfjöldi kórónuveirusmita í Bandaríkjunum í gær

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. nóvember 2020 04:39

COVID-19 sýni. Mynd: EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt og dapurlegt met var sett í Bandaríkjunum í gær en þá greindust rúmlega 99.000 manns með kórónuveirusmit og hafa aldrei verið fleiri á einum degi.

Þetta kemur fram í tölum frá Johns Hopkins háskólanum. 1.112 andlát, af völdum COVID-19, voru einnig skráð í landinu. Í heildina hafa rúmlega 9,4 milljónir greinst með kórónuveiruna, sem veldur COVID-19, í Bandaríkjunum og rúmlega 233.000 hafa látist af völdum COVID-19. Hvergi í heiminum hafa fleiri smit greinst eða fleiri látist af völdum veirunnar.

Dánarhlutfallið er 72,3 á hverja 100.000 íbúa.

Reuters segir að nú liggi rúmlega 50.000 COVID-19-sjúklingar á sjúkrahúsum og hafa þeir ekki verið fleiri í þrjá mánuði.

14 ríki tilkynntu um metfjölda innlagna í gær. Í Norður-Dakóta tilkynntu yfirvöld að nú séu aðeins sex pláss laus á gjörgæsludeildum í ríkinu. Fjöldi innlagna á sjúkrahús er góð vísbending um hvernig faraldurinn þróast hverju sinni því það hefur ekki áhrif á þessa tölu hversu mörg sýni eru tekin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 4 dögum

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma

Afhjúpa ógnvekjandi áróðursherferð sem bendlaði Taylor Swift við nasisma
Pressan
Fyrir 4 dögum

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut

Ótrúlegt myndband sýnir þegar flugvél lenti á bíl á hraðbraut
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 4 dögum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gekkst undir lífsnauðsynlega aðgerð: Eitt fór þó fram hjá læknum og afleiðingarnar voru hræðilegar

Gekkst undir lífsnauðsynlega aðgerð: Eitt fór þó fram hjá læknum og afleiðingarnar voru hræðilegar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Játaði morð á föður sínum eftir 17 tíma yfirheyrslu: Síðar kom í ljós að faðirinn var alls ekki dáinn

Játaði morð á föður sínum eftir 17 tíma yfirheyrslu: Síðar kom í ljós að faðirinn var alls ekki dáinn