
Maður hefur verið handtekinn á Tenerife í kjölfar sameiginlegrar aðgerðar spænsku lögreglunar og Lögreglunnar á Kanaríeyjum, en manninum er gefið að sök ofsóknarherferð á hendur konu á Tenerife.
Rannsókn málsins hófst eftir að konan tilkynnti um að hún hefði fengið síendurtekin ógnandi skilaboð í gegnum skilaboðaforrit og frá fjölmörgum símanúmerum.
Lögregla segir að sum símanúmerin hafi verið tengd við fyrirframgreidd SIM-kort sem gerði örðugt að bera kennsl á sendanda skilaboðanna.
Við húsleit hjá manninum í borginni Santa Cruz á Tenerife fundust myndir af brotaþola vistaðar á fjölmörg raftæki mannsins. Lögregla er nú að rannsaka þessi gögn.
Maðurinn hefur verið úrskurðaður í nálgunarbann gagnvart konunni en rannsókn málsins heldur áfram.
Sjá nánar um málið hér.