

Rétt í þessu var tilkynnt að síðasti opnunardagur verslunarinnar Kjötborgar, á Ásvallagötu í Reykjavík, verði 20. júní næstkomandi.
Áður hefur verið greint frá því að húsnæði verslunarinnar hafi verið selt og að verslunin myndi loka en hún hefur verið starfrækt í þessu húsnæði frá 1981. Þarna hefur raunar verið verslunarrekstur í hartnær öld.
Verslunin er ein þekktasta og ástsælasta hverfisverslun landsins. Um hana hefur verið m.a. gerð samnefnd heimildarmynd en bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir hafa rekið verslunina síðustu áratugi en áður en hún flutti í Vesturbæinn var hún í Smáíbúðahverfinu. Ljóst er að margir íbúar Vesturbæjarins og þótt víðar væri leitað munu sakna viðkiptanna við bræðurna.

Á Facebook-síðu Kjötborgar segir að þann 20. júní verði verslunin opin þangað til birgðir klárast og eru allir hvattir til að kíkja við og versla nauðsynjar eða eitthvað sniðugt og kveðja verslunina með stæl því allt eigi að seljast.
Þeir sem eiga eftir að greiða reikninga frá versluninni eru beðnir um að ganga frá greiðslu sem fyrst. Segir að lokum í tilkynningunni um síðasta opnunardaginn:
„TAKK!“
„Gunnar og Kristján vilja nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í gegnum árin og áratugina. Stuðningurinn, tryggðin, vináttan og velvildin er það sem hefur haldið þeim gangandi allan þennan tíma.“