

Í dag, 1. júní, hefst alþjóðlegur mánuður hinsegin fólks, Pride month, í tilefni dagsins birti Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, sláandi athugasemdir þar sem rætt er um hinsegin fólk á niðrandi máta. Ekki skal rugla saman alþjóðlegum mánuði hinsegin fólks við hátíðina Hinsegin daga sem fer fram í ágúst.
Mikið hefur verið rætt um bakslag í málefnum hinsegin fólks síðustu misseri, sjálf hefur Ingileif rætt um slíkt bakslag reglulega síðustu fjögur árin. Sú umræða náði suðupunkti í september í fyrra þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, mætti Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra Samtakanna 78, í Kastljósi. Ekki voru allir á eitt sáttir um að bakslag væri í málefnum hinsegin fólks, bent var á að lagaleg staða hinsegin einstaklinga væri mun betri hér á landi en víðast hvar á hnettinum. Á hinn boginn var bent á að umræða um hinsegin fólk væri orðin mun hatrammari, þá sérstaklega á samfélagsmiðlum.
Í athugasemdunum sem Ingileif birtir er meðal annars vísað í bókina Vertu þú sem Ingileif er einn höfundur af, en fjallað var um það mál í frétt á Vísi nýverið.
Margir taka undir með henni í athugasemdum, þar á meðal Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem segir: „Það þarf sterk bein – og bak – til að taka þennan slag en það mátt þú og þið vita að það er gríðarlega stór og fjölmennur hópur sem stendur ekki bara með ykkur heldur er fullur þakklætis. Takk!“