fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Sigurður segir illa farið með unga fólkið: Þessu mætir 28 ára einstaklingur á opnu húsi – „Þetta er ekki samkeppni – þetta er kerfislæg útilokun“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. júní 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef við bregðumst ekki við núna, verður stærsta útflutningsvara Íslands á næstu árum ekki fiskur eða orka, heldur unga fólkið okkar sem flýr land í leit að samfélagi sem ber virðingu fyrir tilvist þess.“

Þetta segir Sigurður Sigurðsson, byggingarverkfræðingur og samfélagsrýnir, í aðsendri grein á vef Vísis.

Í grein sinni segir hann að íslenskt samfélag hafi brugðist ungu fólki þegar kemur að húsnæðismálum. Heldur hann því fram að húsnæðismarkaðurinn sé orðinn vettvangur þar sem fjárfestar, stórleigufélög og lífeyrissjóðir hafi yfirhöndina á kostnað þeirra sem séu að reyna að kaupa sína fyrstu íbúð.

Kerfislæg og niðurlægjandi framkoma

Sigurður segir að til sé óskráður sáttmáli í hverju samfélagi sem hljómar nokkurn veginn svona: „Ef þú leggur hart að þér, menntar þig, sýnir ábyrgð, mætir til vinnu og leggur þitt af mörkum til samfélagsins, þá mun það samfélag tryggja þér grunnskilyrði til mannlegs lífs.”

Bendir hann á að mikilvægasta grundvallarskilyrðið sé öruggt húsaskjól, eigið heimili þar sem hægt er að festa rætur, ala upp börn og búa sér til framtíð.

„Á Íslandi í dag er þessi sáttmáli ekki bara brotinn; honum hefur verið kastað á bálköst sérhagsmuna, fákeppni og pólitísks aðgerðaleysis. Það sem blasir við ungu fólki er ekki heilbrigður húsnæðismarkaður, heldur lokuð klíka, vígvöllur þar sem spilin eru merkt og leikreglurnar hannaðar til þess að tryggja að hinir ríku verði ríkari á meðan unga kynslóðin er hneppt í ævilanga leiguánauð. Þetta er ekki náttúrulögmál eða óhjákvæmileg efnahagskreppa. Þetta er meðvituð, kerfislæg og niðurlægjandi framkoma gagnvart ungu fólki á Íslandi í dag.“

„Þetta er ekki samkeppni“

Sigurður segir að tölurnar ljúgi ekki en þær geti þó dulið þann mannlega harmleik sem býr að baki.

„Undanfarna tvo áratugi hefur hlutfall þeirra sem eiga eigin íbúð á höfuðborgarsvæðinu hríðfallið. Íbúðirnar hafa ekki gufað upp – þeim hefur verið safnað saman á fárra hendur. Stórleigufélög, fjárfestingasjóðir og skúffufyrirtæki hafa breytt heimilum fólks í stórgróða- og ávöxtunartæki,“ segir hann og nefnir dæmi af því sem mætir 28 ára einstaklingi á opnu húsi – einstaklingi sem hefur neitað sér um allt og sparað í mörg. Á opnum húsum mætir hann ekki öðru ungu fólki í leit að framtíð.

„Hann mætir fjármagnseigendum og lögaðilum sem mæta með milljarða í bakhöndinni. Þetta er ekki samkeppni – þetta er kerfislæg útilokun,“ segir hann og nefnir að lögaðilar njóti skattalegs forskots og betra aðgengi að lánsfjármagni.

„Það er hrópandi mótsögn að ungt fólk sé dæmt óhæft til að greiða 250 þúsund krónur á mánuði af eigin láni, en í staðinn neytt til að greiða 400 þúsund krónur á mánuði í leigu til braskara fyrir sömu íbúð. Þetta er ekki efnahagsleg skynsemi – þetta er kerfislægur vítahringur og skipulagður glæpur.“

Sigurður segir að samþjöppun á húsnæðismarkaði verði ekki skilin án þess að horft sé til uppruna fjármagnsins. Hann heldur því fram að gríðarlegur arður sem skapast hafi í lokuðum sérhagsmunakerfum, einkum í sjávarútvegi, hafi runnið inn á fasteignamarkaðinn þar sem fjárfestar leiti eftir öruggri ávöxtun.

Allar áróðursvélar ræstar út

Að mati Sigurðar sitji ungt fólk eftir á meðan fjármagnið sé notað til að kaupa upp þær íbúðir sem hefðu annars getað orðið heimili þess. Hann segir þetta vera tvöfalda eignaupptöku þar sem framtíð ungu kynslóðarinnar sé fórnað í þágu fárra fjársterkra aðila.

Jafnframt gagnrýnir hann lífeyrissjóðina harðlega og segir þá kaupa íbúðir í beinni samkeppni við eigin sjóðfélaga. Þannig sé sparnaður launafólks notaður til að hækka fasteignaverð og þrengja að þeim sem reyni að komast inn á markaðinn.

Sigurður hafnar því að lausnir skorti og bendir á að víða erlendis hafi stjórnvöld gripið til aðgerða til að takmarka umsvif fjárfesta á húsnæðismarkaði. Hann telur að aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda sé meðvituð pólitísk ákvörðun sem þjóni hagsmunum fjársterkra aðila fremur en ungs fólks.

Hann segir að valdaelíta landsins viti að full aðild að innri markaði Evrópusambandsins, strangt samkeppniseftirlit, gjaldmiðilsstöðugleiki og lægra vaxtastig myndi rífa niður það skjól sem klíkuskapurinn þrífst í.

„Lægri vextir myndu draga úr græðgislegri ávöxtun fjárfesta á fasteignamarkaði og auka mátt venjulegs fólks. Þess vegna eru allar áróðursvélar ræstar út.“

Grein Sigurðar má lesa í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir Írisi hafa orðið fyrir svívirðingum vegna rangra ásakana – „Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér“

Segir Írisi hafa orðið fyrir svívirðingum vegna rangra ásakana – „Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Segir umræðuna um ESB og auðlindir Íslands sérstaka

Segir umræðuna um ESB og auðlindir Íslands sérstaka
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ofur-El Niño gæti skollið á í sumar – Veðurstofan fjallar um möguleg áhrif á Ísland

Ofur-El Niño gæti skollið á í sumar – Veðurstofan fjallar um möguleg áhrif á Ísland
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Maðurinn á bak við fyrirsögnina stígur fram – „Í fjögur ár hef ég þagað“

Maðurinn á bak við fyrirsögnina stígur fram – „Í fjögur ár hef ég þagað“
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr leitar upplýsinga um bróðurson sinn sem hvarf sporlaust í apríl

Jón Gnarr leitar upplýsinga um bróðurson sinn sem hvarf sporlaust í apríl
Fréttir
Í gær

Sex erlendar konur dæmdar fyrir skjalafals – Mættu ekki og ekki vitað hvar þær halda sig

Sex erlendar konur dæmdar fyrir skjalafals – Mættu ekki og ekki vitað hvar þær halda sig