
Fimmtíu og níu ára gömul flugfreyja hjá British Airways kom nýlega fyrir dóm og svaraði til saka fyrir að hafa unnið drukkin um borði í flugi frá London til Malaga í apríl síðastliðnum.
Farþegar höfðu orð á því við kollega konunnar um borð í fluginu að hún drafaði í tali. Skömmu síðar var hún látin setjast í laust farþegasæti aftarlega í flugvélinni og hún var síðan handtekin eftir lendingu í Malaga.
Við áfengispróf kom í ljós að hún var áttfalt yfir leyfilegum áfengismörkum starfsfólks í flugi. Hafði hún svolgrað í sig léttvín fyrir flugið, líklega nokkrar flöskur, að sögn til að ná úr sér stressi.
Lögmaður konunnar greindi frá því að hún hefði verið undir miklu álagi vegna vandamála í fjölskyldunni undanfarið og hefði drukkið til að slá á streitu.
British Airways rak konuna úr starfi vegna atviksins. Fyrir dómi sagðist hún vera niðurbrotin yfir því að hún myndi ekki getað starfað við fagið aftur.
Sjá nánar um málið hér.