
Rannsókn lögreglu á alvarlegri líkamsárás sem átti sér stað á þorrablóti HK, í Kórnum, föstudagskvöldið 30. janúar, stendur ennþá. Að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er gangur í rannsókninni en nokkuð er í að hún klárist, til dæmis er enn beðið eftir tilteknum rannsóknargögnum.
Mennirnir tveir þekkjast en samkvæmt heimildum DV var um að ræða eitt þungt högg sem olli því að brotaþolinn skall í gólfið. Lá hann þungt haldinn á Landspítalanum um skeið, eða í tæpar sjö vikur, 46 daga.
Hann er á batavegi og er í endurhæfingu á Grensásdeild Landspítalans. Samkvæmt heimildum ber hann varanlegan skaða af árásinni.
Grunaður árásarmaður er þekkt nafn úr undirheimum Reykjavíkur, íslenskur. Samkvæmt heimildum Vísis er hann einn af sex mönnum sem handteknir voru í vikunni í tengslum við rannsókn lögreglu á stórfelldu fíkniefnamáli. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu á mánudag og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans, segir í frétt Vísis um málið.
Málið varðar smygl á fíkniefnum í vökvaformi til landsins í gámi um borð í Dettifossi, flutningaskipi Eimskips.