fbpx
Mánudagur 13.apríl 2026
Fréttir

Mjög alvarleg líkamsárás á Þorrablóti HK – Maður þungt haldinn á gjörgæslu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 9. febrúar 2026 19:00

Frá Kórnum, íþróttahúsi HK. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mjög alvarleg líkamsárás átti sér stað á þorrablóti HK, í Kórnum, föstudagskvöldið 30. janúar.

Samkvæmt heimildum DV úr tveimur áttum gekk þar einn maður hrottalega í skrokk á öðrum, sem lá þungt haldinn á gjörgæsludeild eftir árásina. Er hann sagður hafa borið varanlegan skaða af árásinni. Samkvæmt sömu heimildum er árásarmaðurinn þekkt nafn úr undirheimum Reykjavíkur, íslenskur. Mennirnir tveir eru kunnugir en orsakir árásarinnar eru óstaðfestar.

DV fékk þessar upplýsingar í síðustu viku og hafði þá samband við Sveinbjörn Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóra HK. Hann gat staðfest að atvik hefði átti sér stað á þorrablótinu sem leiddi til þess að lögregla var kölluð á vettvang. Hins vegar hafi hvorki hann né starfsfólk þorrablótsins orðið vitni að því sem gerðist. Vísaði hann til lögreglu um frekari upplýsingar.

Í dag, mánudaginn 9. febrúar, náði DV síðan sambandi við Jónatan Guðnason, aðalvarðstjóra á lögreglustöð 3, hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en þar er sinnt verkefnum í Kópavogi og Breiðholti. Jónatan gat staðfest að atvik frá þorrablótinu hefði leitt til afskipta lögreglu og að málið væri komið á borð rannsóknarsviðs, en slíkt er jafnan vísbending um að mál sé alvarlegt eða viðamikið.

DV náði einnig sambandi við rannsóknarsvið lögreglunnar. Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn, staðfesti að málið væri til rannsóknar hjá deildinni. Meintur árásarmaður væri þó ekki í gæsluvarðhaldi. „Ekki að svo stöddu,“ sagði hún.

Hún upplýsti hins vegar að maðurinn hefði verið í haldi lögreglu. Hún sagðist ekki hafa staðfestar upplýsingar um líðan brotaþola en taldi að hann væri ekki í lífshættu. „En viðkomandi var töluvert slasaður þegar hann komst undir læknishendur,“ segir hún.

Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið að sinni. „Við erum bara að rannsaka þetta mál.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“

Myndband: Ari Edwald hneykslaður – „Bara skemmdarverk“
Fréttir
Í gær

Maður féll í Ölfusá

Maður féll í Ölfusá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu

Maðurinn sem stakk Irynu Zarutska til bana ósakhæfur – Saksóknarar vilja dauðarefsingu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“

DIMMA birtir yfirlýsingu: Gagnrýna Stebba harðlega – „Ærumeiðandi óhróður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“

Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir í lottóinu – „Guð minn góður, þetta breytir öllu lífinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn

Útgerðarfyrirtæki mátti draga ferðir á vígsluathafnir skipa frá skatti en ekki kaup á æfingahjóli fyrir áhöfn