fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Svara gagnrýni vegna Kersins – „Atvik sem var afar óheppilegt og leiðinlegt og við biðjumst afsökunar á því“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 13:06

Kerið. Mynd: Arctic Adventures.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í morgun birti DV frétt um Kerið eftir að rútubílstjórinn Börkur Hrólfsson vakti athygli á aðstöðunni þar, en salerni voru lokuð þegar hann kom að náttúruperlunni og búið að loka veitingaaðstöðunni.

Sjá einnig: Segir eigendur vinsællar náttúruperlu skorta metnað og sakar þá um peningaplokk

Í samtali við DV segir Davíð Arnar Runólfsson, framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures, sem er eigandi Kersins, atvikið afar óheppilegt og ekki samræmast þeirra kröfum.

Davíð Arnar Runólfsson, framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures

„Við hjá Arctic Adventures höfum fylgst með þeirri umræðu sem skapast hefur um starfsemi félagsins við Kerið í Grímsnesi. Kerið er einstakt náttúrufyrirbæri og verndun svæðisins er forsenda allrar starfsemi okkar þar.“

Um atvikið sem vísað er til í frétt DV segir Davíð Arnar að bilun hafi orðið í salernisaðstöðunni.

„Atvik sem var afar óheppilegt og leiðinlegt og við biðjumst afsökunar á því. Það  samræmist ekki þeim kröfum  sem við gerum til okkar sjálfra um aðbúnað og þjónustu. Brugðist var við eins fljótt og verða máttiog unnið er að úrbótum til að tryggja að aðstaðan verði í lagi til framtíðar.  Arctic Adventures er að hefja framkvæmdir við byggingu gestastofu við Kerið þar sem markmiðið er að bæta alla aðstöðu, umgjörð og upplifun gesta okkar.

Markmið okkar er að tryggja aðgengi gesta með ábyrgum hætti, draga úr álagi á viðkvæma náttúru og bæta öryggi og umgengni á svæðinu. Aðgangsgjöld á svæðinu eru nýtt til uppbyggingar, viðhalds og verndaraðgerða, þar á meðal aðstöðu fyrir gesti.“

Segir Davíð Arnar fyrirtækið á undanförnum misserum hafa lagt áherslu á opið samtal og uppbyggilega umræðu um hvernig best sé að þróa svæðið til framtíðar þannig að náttúruvernd og upplifun gesta fari saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“