fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fylgdust með svikahröppum að verki í rauntíma

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 18:45

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fylgdust með svikahröppum að verki, í netheimum, í rauntíma fyrr í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögrglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir að því miður gerist það ekki oft að endurheimt náist í svikamálum yfir netið en þar skipti tíminn öllu máli. Í dag hafi aðstæður þó verið þannig að lögreglan hafi getað fylgst með því í rauntíma þegar fólk með rafræn skilríki var blekkt til þess að skrá sig inn á svikasíðu í nafni Skattsins og með því gefa brotamönnum leið til þess að hafa af þeim fjármuni. Jafnóðum hafi lögreglan hringt í þolendur þessara brota og hvatt þá til að vera í samskiptum við sinn viðskiptabanka. Unnið sé að því að taka síðuna niður en þangað til verði lögreglan á vaktinni.

Í tilkynningunni er áréttað að fólk hafi varann á þegar því séu sendir tenglar inn á vefsíður. Telji fólk óljóst hvort um svik sé að ræða sé góð regla að hafa samband við sendandann símleiðis í opinbert símanúmer eða fara inn á opinbera síðu sendanda og skrá sig inn þar – ekki ýta á tengla.

Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessa og telur sig hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka og fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“