

Nú geta íbúar á Ísafirði, Bolungarvík, Flateyri, Súðavík, Suðureyri og Þingeyri nýtt sér Snjallverslun Krónunnar og sótt vörur sínar á afhendingarstað hjá N1 á Ísafirði. Pantanir eru teknar saman í verslun Krónunnar á Akranesi alla miðvikudaga og verða fyrstu pantanir afhentar í dag. Tíðni ferða verður endurskoðuð í takt við eftirspurn. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu þar sem segir einnig að þegar er orðið fullt í fyrstu sendingu og til skoðunar að senda í Bolungarvík.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir þjónustuna svar við skýru ákalli frá íbúum svæðisins.
„Íbúar á Ísafirði og í nágrannabyggðum hafa lengi kallað eftir fjölbreyttari dagvöru á samkeppnishæfu verði. Eftirspurnin er greinilega til staðar því þegar er orðið fullt í fyrstu sendingu. Ef vel gengur verður næsta skref að skoða fleiri afhendingarstaði á svæðinu, þar á meðal í Bolungarvík, sérstaklega í ljósi nýlegra breytinga á verslunarþjónustu í bænum. Þetta snýst fyrst og fremst um að jafna aðgengi landsmanna að matvöru og að fólk geti verslað á sínum forsendum, óháð búsetu,“ segir Guðrún.
Verkefnið er unnið í samstarfi við N1 á Ísafirði þar sem afhending fer fram. Daníel Viðar Guðmundsson, stöðvarstjóri N1 við Hafnarstræti, þekkir Krónuna vel sem fyrrverandi starfsmaður, síðast sem verslunarstjóri Krónunnar í Vestmannaeyjum.
„Það er frábært að fá að vinna aftur með Krónunni að þessu verkefni. Við hjá N1 tökum vel á móti þeim sem sækja pantanir sínar hér. Þetta er þjónusta sem einfaldar fólki lífið og gerir því kleift að versla á hagstæðu verði án mikillar fyrirhafnar,“ segir Daníel.
Með þessari viðbót nær Snjallverslun Krónunnar nú til yfir 90 póstnúmera um land allt og þjónustar um 360 þúsund íbúa, eða yfir 90% landsmanna. Þar af búa um 100 þúsund manns á landsbyggðinni og um 5 þúsund á Vestfjörðum.