fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Pressan

Þúsundir Bandaríkjamanna gætu misst vegabréfið vegna ógreiddra meðlaga

Pressan
Föstudaginn 8. maí 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarísk stjórnvöld ætla að hefja afturköllun vegabréfa þúsunda foreldra vegna ógreiddra meðlaga. Aðgerðin er hluti af hertari framkvæmd laga sem miða að því að knýja fram greiðslur til barna sem eiga inni meðlög.

AP-fréttaveitan greinir frá þessu.

Afturköllun fyrstu vegabréfanna mun hefjast strax í dag og í fyrstu beinast að þeim sem skulda 100 þúsund Bandaríkjadali eða meira, jafnvirði rúmlega 13 milljóna íslenskra króna.

Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti Bandaríkjanna nær það til um 2.700 bandarískra vegabréfshafa.

Yfirvöld hyggjast þó víkka aðgerðina fljótlega út þannig að hún taki einnig til þeirra sem skulda meira en 2.500 dali í meðlög, sem er það lágmark sem kveðið er á um í bandarískum lögum frá árinu 1996. Þeim lögum hefur hingað til lítt verið framfylgt.

Fram að þessu hafa refsiaðgerðir fyrst og fremst beinst að fólki sem sækir um endurnýjun vegabréfa sinna. Með nýju verklagi munu bandarísk stjórnvöld hins vegar geta afturkallað þegar útgefin vegabréf hjá þeim sem eru í vanskilum.

Mora Namdar, sem fer með ræðismannamál hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu, segir að markmiðið sé að þrýsta á foreldra að standa við lagalegar skyldur sínar gagnvart börnum sínum.

Utanríkisráðuneytið segir fyrstu viðbrögð benda til þess að aðgerðin hafi þegar haft áhrif. Frá því fréttir bárust af breytingunum í febrúar hafi hundruð foreldra gengið frá skuldum sínum við yfirvöld einstakra ríkja.

Þeir sem missa vegabréf sín fá tilkynningu um að þau séu ekki lengur gild til ferðalaga og þurfa að greiða skuldir sínar að fullu áður en þeir geta sótt um nýtt vegabréf.

Ef einstaklingur er erlendis þegar vegabréfið er afturkallað þarf hann að leita til bandarísks sendiráðs eða ræðisskrifstofu til að fá neyðarskilríki sem heimilar honum að snúa aftur til Bandaríkjanna.

Aðgerðin nær til allra bandarískra ríkisborgara með vegabréf, óháð því hvort þeir séu fæddir í Bandaríkjunum eða hafi síðar fengið ríkisborgararétt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax
Pressan
Fyrir 5 dögum

Undirbúa sig undir fjöldajarðsetningar á Gotlandi

Undirbúa sig undir fjöldajarðsetningar á Gotlandi