fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Sjónvarpskonan sem nú stelur sviðsljósinu – Var áður þjónn og fasteignasali

433
Föstudaginn 8. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellie Collins hefur á undanförnum árum vakið mikla athygli sem viðtalsstjóri og fréttamaður í knattspyrnuheiminum og er nú orðin eitt þekktasta andlit umfjöllunar ensku úrvalsdeildarinnar.

Collins, sem er 26 ára, starfar hjá Premier League Productions og hefur tekið viðtöl við nokkra af stærstu leikmönnum deildarinnar. Hún hefur meðal annars rætt við Andy Robertson, Bruno Fernandes og Cody Gakpo.

Ferill hennar hófst þó á allt öðrum stað, en hún starfaði áður sem þjónn í London áður en hún færði sig yfir í fasteignabransann. Árið 2021 hóf hún störf hjá IMG Media sem ritstjórnarfulltrúi, en innan árs var hún orðin kynningarkona.

Collins hefur einnig starfað á stórviðburðum á borð við Wimbledon og úrslitaleik Meistaradeildarinnar, þar sem Paris Saint-Germain tryggði sér titil.

Hún er einnig vinsæl á samfélagsmiðlum með tugþúsundir fylgjenda og deilir þar efni frá ferðum sínum og störfum víðs vegar um heiminn.

Collins er þekktur stuðningsmaður Chelsea og sést reglulega á Stamford Bridge þar sem hún styður liðið sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt