fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Pressan

Kórónuveiran mun stytta meðalævilengd Bandaríkjamanna um rúmlega eitt ár

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 23. janúar 2021 19:00

Það er hægt að lengja lífið töluvert með því að breyta lífsstílnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur ekki aðeins áhrif á fjölda dauðsfalla í Bandaríkjunum þessar vikurnar því hann mun einnig stytta meðalævi Bandaríkjamanna um rúmlega eitt ár. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar um áhrif faraldursins.

Rannsóknin hefur verið birt í the Proceedings of the National Academy of Sciences. Samkvæmt henni mun faraldurinn draga úr lífslíkum Bandaríkjamanna um 1,13 ár og orsaka það að hlutfallslega of margt svart fólk og fólk af latneskum uppruna deyr. CNN skýrir frá þessu.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að væntanleg ævilengd svarts fólks og fólks af latneskum uppruna mun styttast mun meira en hjá hvítu fólki eða þrisvar til fjórum sinnum meira. Reikna má með að heimsfaraldurinn muni eyðileggja 10 ára framfarir hvað varðar að draga úr muninum á ævilengd hvítra og svartra og eyðileggja 70% af þeim árangri sem hefur náðst í að lengja lífslíkur fólks af suður-amerískum uppruna hefur CNN eftir Theresa Andrasfay sem vann að rannsókninni.

1959 voru lífslíkur Bandaríkjamanna 69,9 ár en voru 78,9 ár 2016. Þær hafa þó lækkað aðeins á undanförnum árum vegna ofneyslu lyfja og fíkniefna, sjálfsvíga, áfengisneyslu og offitu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?

Kannabis er orðið að milljarðaiðnaði í Bandaríkjunum – Hvaða áhrif hefur efnið á heilsu fólks?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ömurlegt að missa auga: „Ég er miður mín alla daga út af því“

Ömurlegt að missa auga: „Ég er miður mín alla daga út af því“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Ég hef sofið hjá ungum og gömlum mönnum“ – „Það er mikill munur“

„Ég hef sofið hjá ungum og gömlum mönnum“ – „Það er mikill munur“
Pressan
Fyrir 3 dögum

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar

55 fermetra sumarhús til sölu – Ásett verð er 220 milljónir – Sjáðu myndirnar