fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Pressan

Landamæri Ástralíu verða væntanlega lokuð allt árið

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 22. janúar 2021 20:00

Frá Melbourne í Ástralíu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralía mun væntanlega ekki opna landamæri sín á þessu ári fyrir ferðamönnum að sögn Brenda Murphy, heilbrigðisráðherra landsins. Það er því óhætt að fara að setja pásu á drauma um ferð til Ástralíu.

Landið hefur að mestu verið lokað fyrir útlendingum síðan í mars á síðasta ári vegna heimsfaraldursins. Aðeins takmarkaður fjöldi Ástrala og fjölskyldur þeirra og örfáir aðrir fá leyfi til að koma til þessa gríðarstóra lands þar sem 25 milljónir manna búa.

„Ég held að við höldum áfram með harðar reglur á landamærunum stærsta hluta þessa árs. Þrátt fyrir að stór hluti íbúanna verði bólusettur vitum við ekki hvort það kemur í veg fyrir smit,“ sagði hún í samtali við ABC.

Þeir sem koma til landsins núna þurfa að greiða sem nemur rúmlega 300.000 íslenskum krónum fyrir tveggja vikna dvöl á sóttkvíarhóteli. Stefnt er að því að hefja bólusetningu gegn veirunni í lok febrúar.

Rúmlega 28.700 hafa greinst með veiruna í landinu og 909 hafa látist af völdum COVID-19.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu

Svona styrkir þú þarmaflóruna með einfaldri breytingu á mataræðinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?
Pressan
Fyrir 3 dögum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum

92 ára gamall maður ákærður fyrir glæp sem var framinn fyrir 58 árum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“

Trump urðar yfir æðstaklerk Írans – „ÉG BJARGAÐI HONUM“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“

Trump illa sáttur með gælunafnið sem framkvæmdastjóri NATO gaf honum – „Pabbi er kominn heim“
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa

FBI á tánum vegna „sofandi“ íranskra hryðjuverkahópa
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu

Þessi kynlífsráð geta (kannski) bjargað sambandinu