fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
433Sport

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. maí 2026 13:39

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hryggir Declan Rice, stjörnu Arsenal, að sjá stöðuna á West Ham um þessar mundir. Liðin mætast um næstu helgi.

Rice kom til Arsenal frá West Ham árið 2023 á 105 milljónir punda og hefur verið stórkostlegur síðan. Liðið er nú í bílstjórasætinu um enska meistaratitilinn þegar þrír leikir eru eftir.

„Þetta er félag sem gaf mér allt. Án West Ham væri ég ekkert. Þeir gáfu mér tækifæri þegar Chelsea gerði það ekki,“ sagði Rice um West Ham fyrir komandi leik.

„Moyes, Bilic og Pellegrini gerðu mig að fyrirliða. Ég á margar góðar minningar frá þessu félagi.“

West Ham er í fallsæti og þarf helst að ná í úrslit gegn Arsenal.

„Það er ekki gott að sjá stöðuna sem þeir eru í, en þetta er fótbolti og við ætlum okkur að vinna. Við erum að reyna að vinna úrvalsdeildina.

Megið besta liðið vinna,“ sagði Rice að lokum um málið.

West Ham er tveimur stigum á eftir Tottenham, sem er í síðasta örugga sætinu, þegar bæði lið eiga þrjá leiki eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Risastór nöfn utan hóps

Risastór nöfn utan hóps
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndband frá öllu ruglinu sem gekk á í Kaupmannahöfn – „Nú þarf að komast að því hverjir stóðu á bak við þetta“

Sjáðu myndband frá öllu ruglinu sem gekk á í Kaupmannahöfn – „Nú þarf að komast að því hverjir stóðu á bak við þetta“
433Sport
Fyrir 2 dögum

FH óskar eftir því að bærinn kaupi af þeim búningsklefa á tæpar 300 milljónir

FH óskar eftir því að bærinn kaupi af þeim búningsklefa á tæpar 300 milljónir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina