fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Pressan

Miklir eldar í Oregon – Mörg hundruð hús brenna

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 10. september 2020 09:15

Slökkviliðsmenn berjast við skógareld í Oregon. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skógareldar á vesturströnd Bandaríkjanna hafa eyðilagt mörg hundruð heimili í Oregon. 12 ára piltur og amma hans létust í eldum sunnan við Portland, stærstu borg ríkisins, móðir piltsins er í lífshættu.

Kate Brown, ríkisstjóri, óttast að eldarnir geti orðið þeir verstu í sögu ríkisins hvað varðar manntjón og tjón á fasteignum. Hún hefur ekki farið nákvæmlega í saumana á hugsanlegt umfang tjónsins en einn af verstu skógareldunum í ríkinu var 1936 en þá létust 13 og bærinn Brandon brann til grunna.

Slökkviliðsmenn berjast við fjölda skógar- og gróðurelda í ríkinu. Margir hafa flúið heimili sín en aðrir eru innikróaðir af eldum og komast ekki á brott.

Sterkar vindhviður auka enn á útbreiðslu eldanna og stundum er fólki fyrirskipað að yfirgefa heimili sín samstundis þannig að það hefur aðeins nokkrar mínútur til að koma sér á brott og verður að skilja allt sitt eftir.

Brown sagði í gær að slökkviliðsmönnum haft tekist að bjarga fólki með því að draga það yfir ár.

Eldarnir ná einnig yfir til Washington en sjaldgæft er að svo miklir skógareldar logi í þessum tveimur ríkjum því þar er loftslagið svalara og rakara en sunnar.

Kalifornía hefur einnig farið illa út úr skógareldum að undanförnu en þeir hafa nú teygt sig yfir 8.900 ferkílómetra. Að minnsta kosti 11 hafa látist þar síðustu þrjár vikur og um 3.300 hús hafa eyðilagst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið

Stórtíðindi af bóluefnum – Nýtt bóluefni veitir vernd gegn kórónuveirum sem eru ekki enn komnar fram á sjónarsviðið
Pressan
Í gær

Hæfileikaríkur miðill blekkti bæjarstjórann upp úr skónum

Hæfileikaríkur miðill blekkti bæjarstjórann upp úr skónum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins

Voyager 1 er tæplega fimmtugt en kemur okkur enn á óvart með upplýsingum frá jaðri sólkerfisins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins

Talíbanar vilja fá fleiri ferðamenn til landsins
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lögreglan kom að 10-15 mönnum sem stóðu og fróuðu sér

Lögreglan kom að 10-15 mönnum sem stóðu og fróuðu sér
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tvær nýjar myndir um Hringadróttinssögu væntanlegar

Tvær nýjar myndir um Hringadróttinssögu væntanlegar