fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Pressan

Óvænt áhrif kórónuveirusmits í dönskum minkum – Beikonskortur á Englandi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 11. nóvember 2020 07:10

Beikon er vinsælt maður á víst ekki að borða það miðað við það sem næringarfræðingurinn segir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um helgina lögðu bresk stjórnvöld algjört bann við komum fólks frá Danmörku til Bretlands og einnig var lagt bann við að flugvélar, sem koma frá Danmörku, fái að lenda í Englandi. Ástæðan er að stökkbreytt kórónuveira hefur fundist í dönskum minkum og hefur hún borist í fólk. Þetta stökkbreytta afbrigði getur, ef allt fer á versta veg, sett okkur aftur á byrjunarreit í baráttu okkar við veiruna því stökkbreytta afbrigðið er ónæmt fyrir þeim bóluefnum sem eru í þróun.

Enn sem komið er er vöruflæði á milli Danmerkur og Bretlands í ágætu lagi en Bretar eru þó farnir að hafa áhyggjur af yfirvofandi skorti á beikoni sem er ómissandi hluti af „enskum morgunverði“. The Sun skýrir frá þessu.

Ástæðan er að fjórðungur alls þess svínakjöts, sem Bretar borða, kemur frá Danmörku og með ferðabanni bresku stjórnarinnar er þrengt töluvert að vöruflutningum á milli landanna.

Danskir vöruflutningabílstjórar mega ekki lengur koma til landsins og því eru flutningabílarnir sendir án bílstjóra með ferjum til Bretlands þar sem aðrir bílstjórar taka við þeim. Sami háttur er hafður á þegar bílarnir fara aftur til meginlandsins. Hætt er við að þetta muni hægja á vörustreyminu og hafa margir Bretar áhyggjur af beikonskorti sem gæti orðið vegna þessa. Það er því spurning hvort þeir fari að hamstra beikon eins og margir hafa hamstrað salernispappír og ger.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar

Fjármálaráðgjafi segir þessi ráð hjálpa til við að lækka skuldirnar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax

Ef pinkóðinn þinn er á listanum, þá ættirðu að breyta honum strax
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans

Hún fór heim til hans – Þegar hún fór inn á bað uppgötvaði hún stóra „leyndarmálið“ hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“

Völd Pútíns fara þverrandi – „Vinahópurinn hefur minnkað mikið“
Pressan
Fyrir 3 dögum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Fyrir 3 dögum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir