fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Köttur smitaður af COVID-19

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 30. mars 2020 19:00

Myndin úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Belgískur köttur er smitaður af COVID-19 kórónuveirunni. Talið er að hann hafi smitast af eiganda sínum. Þetta segir Steven Van Gucht einn af æðstu yfirmönnum belgískra heilbrigðisyfirvalda.

Samkvæmt frétt The Brussels Times þá var kötturinn rannsakaður eftir að hann fór að sýna einkenni COVID-19 smits.

„Kötturinn var með niðurgang, uppköst og átti erfitt með andardrátt. Vísindamenn fundu kórónuveiru í skít kattarins.“

Sagði Van Gucht á fréttamannafundi á föstudaginn.

Kötturinn fór að sýna einkenni smits viku eftir að eigandi hans fór að sýna sömu einkenni.

Ekki er vitað um mörg tilfelli í heiminum þar sem kórónuveira hefur borist frá fólki í dýr. Skýrt hefur verið frá einu slíku tilfelli í Hong Kong þar sem hundur smitaðist af COVID-19. Ákveðnar efasemdir hafa þó verið uppi um hvort það var á rökum reist.

En belgísk yfirvöld virðast vera viss í sinni sök. Van Gucht lagði áherslu á að ótrúlega litlar líkur séu á að smit berist úr fólki yfir í dýr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Í gær

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins