fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Ari segir allt í klessu hjá borginni – „Bílastæði eru núna orðin einhver lúxusvara“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Svo vill til að ég hef áratugareynslu af rekstri stórra fyrirtækja á Íslandi. Ég kann að snúa við erfiðri stöðu,“ segir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Ari sendir þar brýningu til borgarbúa um að kjósa Miðflokkinn og fer hann yfir það sem betur má fara í Reykjavík í grein sinni. Nefnir hann til dæmis „furðuhugmyndir“ um Borgarlínu.

„Sífellt fleiri sjá nú að endurskoða þarf samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins frá grunni og koma t.d. í veg fyrir fyrirsjáanleg skemmdarverk sem fyrirhuguð eru á Suðurlandsbraut,“ segir hann og bætir við að ofuráhersla borgaryfirvalda á þéttingu byggðar sé komin út í öfgar og hafi átt sinn þátt í hækkun fasteignaverðs.

„Sama má segja um hatrið á einkabílnum, sem birtist til dæmis í því að bílastæði eru núna orðin einhver lúxusvara.“

Hann nefnir fleiri atriði og segir að gera þurfi betur í málefnum grunnskóla og leikskólakerfið sé að bregðast fjölskyldum í Reykjavík.

„Sagt er að ástandið hafi aldrei verið verra í þessum málum. Hvers konar vitnisburður er það um stjórn vinstri flokkanna á þessum málum á undanförnum árum? Kannski var forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar þess vegna fenginn til að kynna „nýtt útspil“ flokksins í leikskólamálum á heldur furðulegum blaðamannafundi í Kópavogi á dögunum.“

Ari segir að skuldir hrannist upp og staða borgarsjóðs versni.

„Það þarf að taka til í rekstri borgarinnar og setja grunnþjónustuna í forgang. Borgarbúar vilja að hlustað sé á þeirra þarfir í stað þess að kerfið haldi bara áfram að þenjast út. Svo vill til að ég hef áratugareynslu af rekstri stórra fyrirtækja á Íslandi. Ég kann að snúa við erfiðri stöðu,“ segir hann og beinir orðum sínum að lokum til Reykvíkinga.

„Saman getum við tekið til hendinni í borginni okkar og komið henni í fremstu röð. Borgarbúar eiga betra skilið. Íslendingar eiga betra skilið. Tækifærið er núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi

Halla krefst úrbóta eftir að naumlega tókst að forða stórslysi
Fréttir
Í gær

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“

Dóra Björt bálreið út í RÚV – „Er verið að upplýsa almenning, eða hafa áhrif á kosningar?“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision

Rannsókn varpar ljósi á leynilega herferð Ísraels í Eurovision