fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Kona dæmd fyrir að aka á bosnískan knattspyrnustuðningsmann fyrir utan Laugardalshöllina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 13. apríl 2026 10:30

Engjavegur, hjá Laugardalshöll. Mynd: Google Maps.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mánudaginn 11. september árið 2023 mörðu Íslendingar sigur á Bosníumönnum í knattspyrnulandsleik á Laugardalsvellinum, 1:0, með marki Alfreðs Finnbogasona. Skömmu fyrir leikinn átti sér stað örlagaríkt atvik fyrir utan Laugardalshöllina, sem ekki hefur farið í hámæli hingað til. Kona að norðan ók, ekki löngu fyrir leik, eftir Engjavegi, þar sem hópur bosnískra stuðningsmanna var á göngu, og ók yfir fótinn á einum stuðningsmanninum.

Konan ók burtu af vettvangi en atvikið var tilkynnt til lögreglu sem handtók konuna hjá Kringlunni. Hún reyndist hafa áfengismagn í blóði yfir leyfilegum mörkum en hún sagðist hafa drukkið síðast laust eftir kl. 7 um morguninn en hún hafði verið í næturlöngu samkvæmi.

Konan lýsti atvikum svo að hún hafi flautað á hóp stuðningsmannanna til að gantast við þá en þeir brugðist við með heiftúðugum hætti og sparkað í bíl hennar og barið á hann. Hafi hún fyllst skelfingu og þess vegna ekið brott frá vettvangnum.

Bosniski stuðningsmaðurinn hlaut áverka á fæti ökkla og var úrskurðaður með 5% örorku. Stuðningsmennirnir neituðu því að hafa verið með skrílslæti og ráðist á bíl konunnar. Myndbandsupptökur úr eftirlitsmyndavélum gáfu til kynna að konunni hafi ekki stafað nein hætta af stuðningsdmönnunum. Myndbandi sýnir hana aka ógætilega framhjá hópnum en stuðningsmennirnir blokkuðu götuna að hluta.

Réttað var yfir konunni í Héraðsdómi Norðurlands vestra þó að atvikið hafi átt sér stað Reykjavík. Stafar það væntanlega af því að konan eigi heimili í umdæminu.

Hún var sakfelld og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi, mánaðarlanga sviptingu ökuréttar og til greiðslu 110 þúsund króna sektar í ríkissjóð.

Hún þarf að greiða brotaþola rétt rúmlega milljón króna í miskabætur og 720 þúsund krónur málskostnað. Hún þarf ennfremur að greiða rúmlega 1,7 milljónir í annann sakarkostnað. Atvikið mun því reynast henni dýrt þó að refsingin við brotinu sé ekki þung.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja

Ákærður fyrir nauðgun eftir að samræði hófst með vilja
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“

Allt á suðupunkti í Grímsnesinu: Segir Fjólu tala niður til fólks – „Talað um fólk eins og mig eins og við séum ekki „alvöru“ íbúar“
Fréttir
Í gær

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“

Fluttu í draumasamfélagið árið 2007 en nú er staðan önnur – „Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð“
Fréttir
Í gær

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum

Ísland segir sig frá orkusáttmálanum
Fréttir
Í gær

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“

Brugðið yfir skemmdarverki í Hamraborginni – „Mjög óviðeigandi framkvæmd og sér í lagi núna korter í kosningar!“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“

Arkitekt hjá borginni segist nokkrum sinnum hafa verið milli steins og sleggju: „Erfitt fyrir mig að segja „Já en þetta eru ekki góðar íbúðir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts