fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Gagnaleki hjá bókunarsíðunni Booking – Þessar upplýsingar láku út

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. apríl 2026 16:30

Booking er ein stærsta bókunarsíða heims.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollenska bókunarsíðan Booking varar viðskiptavini sína við að upplýsingum gæti hafa verið stolið. Upp komst um gagnaleka hjá síðunni fyrir skemmstu.

Booking er ein stærsta bókunarsíða heims á sviði ferðaþjónustu, með milljónir hótela, gistiheimila og íbúða á samning. Einnig er hægt að bóka flug, afþreyingu, bílaleigubíla, leigubíla og margt fleira í gegnum síðuna.

Eins og segir í frétt breska blaðsins The Guardian uppgötvaðist nýlega gagnaleki hjá síðunni og upplýsingar einhverra viðskiptavina voru aðgengilegar óprúttnum aðilum. Segist fyrirtækið hafa tekið eftir grunsamlegum hreyfingum í tölvukerfinu.

„Eftir að starfsemin uppgötvaðist var brugðist við til að stöðva hana,“ segir í tilkynningu Booking. „Við höfum uppfært PIN númerin hjá viðkomandi viðskiptavinum og látið gesti vita.“

Vildi fyrirtækið ekki segja til um hversu margir viðskiptavinir þess hafi lent í þessum gagnaleka. En talsmenn þess segja að hinir óprúttnu aðilar hafi ekki komist yfir greiðslukortanúmer eða aðrar fjárhagslegar upplýsingar.

Að sögn Booking var um að ræða tímasetningar bókana, nöfn, tölvupóstföng, heimilisföng og símanúmer. Það er upplýsingar sem viðskiptavinir gefa upp þegar þeir bóka hótel eða aðra gistingu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“