fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fréttir

Sigrún er oft með loddaralíðan – „Ég er alltaf að bíða eftir að það komist upp um mig“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 16. janúar 2026 12:30

Sigrún Harðardóttir. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Harðardóttir fiðluleikari spilar fyrstu fiðlu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera verkefnastjóri barnadagskrár hjá Hörpu. Hún hefur sett upp leiksýningar fyrir yngstu kynslóðina, meðal annars Tjaldið í Borgarleikhúsinu, þar sem hún bæði leikur sjálf og semur gjarnan tónlistina eins og hún gerði fyrir Blómin á þakinu í Þjóðleikhúsinu.

Sigrún segist oft finna fyrir loddaralíðan þó vel gangi.

„Þegar maður er í einhverju svona flæði og skemmtilegum verkefnum þá er maður ekkert að velta því fyrir sér hvort maður geti samið tónlist. Maður gerir það bara. Ég er samt oft með þessa loddaralíðan. Ég er alltaf að bíða eftir að það komist upp um mig.“

Fiðrildaáhrif lífsins

Í viðtali í Segðu mér á RÚV segist Sigrún gjarnan hugsa um fiðrildaáhrifin í lífinu, hvernig eitt leiði af öðru og þannig hefur hún endað á þeim stað sem hún er nú. Hún vinnur mikið með leikhópnum Miðnætti sem hún er í ásamt Agnesi Wild og Eru Björg Harðardóttur.

„Ég reyni að temja mér að hugsa um flæðið og leyfa hlutunum bara að gerast. Góðir hlutir gerast ef maður er opinn.“

Létu allt flakka og sköpuðu álfa

Með æskuvinkonu sinni, Agnesi Wild, leikstjóra, skapaði hún álfana Þorra og Þuru og hafa þær gert leikrit í Tjarnarbíói og þrjár seríur fyrir RÚV. Álfarnir urðu til í heita pottinum hjá móður Agnesar þegar Agnes og Sigrún voru 16 ára.

„Þau hefðu aldrei orðið til nema bara af því að við Agnes, sem leikur Þorra, vorum bara 16 ára krakkar, leiklistarnördar í Mosó, þegar við vorum fengnar til að koma með skemmtiatriði á leikskóla.“

Þá ákváðu þær að þetta skyldu verða álfar og móðir Agnesar stakk upp á nöfnunum. Sigrún kunni þrjú grip á gítar en átti engan gítar sjálf og fékk því lánaðan dótagítar frá litla bróður Agnesar.

„Ég held bara af því að framheilinn okkar var svo rosalega óþroskaður að við létum bara allt flakka. Þess vegna er þetta eins og það er.“

„Ég átti alveg smá erfitt með þetta á tímabili, að staðsetja mig. En núna er ég bara mjög sátt við að vera álfur og fiðluleikari og alls konar. Við eigum öll trúðinn innra með okkur.“

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“

Spyr hvað stjórnmálamenn hafa að fela – „Orðið tískufyrirbæri í stjórnmálum að velja sér fjölmiðla til að ræða við eins og veitingastað“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum

Margir uggandi yfir gervigreindarmyndum sem tröllríða samfélagsmiðlum
Fréttir
Í gær

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa

Skipulögð brotastarfsemi og Rolex-úr – Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og sófa
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit

Sauð upp úr á Seltjarnarnesi eftir sambandsslit
Fréttir
Í gær

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“

Segir útspil Miðflokksins smá fyndið – „Random bissnesskall á jeppa sem rúllar inn af golfvellinum“
Fréttir
Í gær

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði

Lára svarar eiganda Santé fullum hálsi – Sagði hana beita ódýru og ósmekklegu bragði