

Meðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var innbrot í kirkju en nú í morgun lá ekki fyrir hvort einhverju hefði verið stolið úr kirkjunni,
Óskað var eftir aðstoð lögreglu í verslun í Laugardalshverfi í Reykjavík vegna hnupls, málið var afgreitt með vettvangsformi.
Afskipti voru höfð af pari sem var að stela úr verslun í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Parið var flutt á lögreglustöð þar sem málið var afgreitt.
Kona var handtekin í miðborginni þar sem hún var til vandræða, þegar lögregla hafði afskipti af viðkomandi neitaði hún að gefa upp nafn. Hún var flutt á lögreglustöð þar sem málið var klárað með skýrslutöku.
Aðili handtekinn í Múlahverfi vegna sölu læknadóps og vopnalagabrots.
Aðili í mjög annarlegu ástandi sökum áfengisneyslu var handtekinn í miðborginni þar sem hann var til vandræða og fór ekki að fyrirmælum lögreglu.
Annar aðili var handtekinn í miðborginni vegna brots á lögreglusamþykkt, vopnalagabrots og segja ekki til nafns.
Þriðji aðilinn var handtekinn í miðborginni en sá var til vandræða og réðst á lögreglu þegar afskipti voru höfð af viðkomandi.
Brotist var inn í kirkju í hverfi 108, gerendur voru farnir þegar lögregla kom á staðinn og ekki er vitað á þessari stundu hvort einhverju var stolið. Það er ekki tekið fram hvaða kirkju er um að ræða en í hverfi 108 er meðal annars Bústaðakirkja og eftir því sem DV kemst næst er það eina kirkjan í hverfinu sem tilheyrir þjóðkirkjunni.
Í Hafnarfirði ók ökumaður bifreið sinni á 212 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klst. Hann var stöðvaður í hverfi eftir að hafa gert tilraun til að komast undan lögreglu, ökumaðurinn var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á pizzastað í Hafnarfirði vegna manns sem var þar til vandræða, manninum var vísað á brott.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í miðbæ Kópavogs vegna líkamsárásar en gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögregla mætti á staðinn.
Umferðaróhapp varð í Kópavogi þar sem ökumaður ók bifreið sinni upp á hringtorg, ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis og var því handtekinn.
Óhapp varð á Tungubakkaflugvelli í Mosfellsbæ þar sem flugvél hvolfdi í lendingu, einn var í vélinni og slasaðist hann ekki.
Loks var óskað eftir aðstoð lögreglu í strætó vegna slagsmála í vagni sem var staddur í Árbæ. Hverjar lyktir þess máls urðu kemur ekki fram í dagbók lögreglu.