fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Segir leikmenn hafa rætt við KSÍ um mætinguna – „Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér“

433
Laugardaginn 18. apríl 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Mikið var rætt um mætinguna á leikinn við Úkraínu á þriðjudag, en undir 1500 manns mættu á þennan mikilvæga leik í undankeppni HM. Þorsteinn Halldórsson þjálfari var með ákall til þjóðarinnar eftir leik þar sem hann hvatti menn til að mæta á völlinn. Var svekkjandi að ekki fleiri hafi mætt?

„Já og nei. Auðvitað er maður þakklátur fyrir þá sem mæta en auðvitað vill maður að það mæti fleiri,“ sagði Glódís.

video
play-sharp-fill

Mikill uppgangur hefur verið í kvennaknattspyrnu úti í heimi hvað varðar aðsókn og áhuga en virðist það ekki haldast í hendur við það sem er að gerast hér heima.

„Við höfum líka séð hvað er að gerast úti í heimi og maður sér að strákarnir eru að selja upp Laugardalsvöll. Þetta eru smá vonbrigði hvað það varðar,“ sagði Karólína.

Glódís vill að Ísland sem þjóð verði þekkt fyrir að hafa mikla aðsókn og mætingu á íþróttakappleikjum.

„Mig dreymir mjög um að við séum þjóð sem mætir alltaf að styðja okkar fólk, alveg sama í hverju það er. Við erum Ísland og erum underdogs í flestu. Og við elskum það. Það skiptir ekki máli í hvaða íþrótt eða karla eða kvenna, yngri lið, að við mætum á völlinn alltaf og styðjum okkar fólk.

Við höfum oft talað um að lið nenni ekki að mæta hingað að spila út af veðrinu, en það væri ógeðslega kúl ef það væri af því það er svo fokking góð stemning. Ég held að við getum alveg komist þangað en við þurfum kannski að gera betur í ýmsu.“

En hefur eitthvað samtal átt sér stað milli KSÍ og leikmanna um þessi mál?

„Já, aðeins. Við sem erum að spila úti erum líka komnar með ágætis sýn á hvernig þetta getur litið út. Við erum aðeins að reyna að miðla því áfram.

Þetta hefur ekki gerst að sjálfu sér úti þannig við þurfum að setja upp einhverja stefnu um hvernig við ætlum að gera þetta.“

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður

Þetta er eiginkona mannsins sem allt snýst um þessa stundina – Félagi hans daðraði mikið við hana á árum áður
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag

Barcelona svarar svakalegum ásökunum forseta Real Madrid í dag
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“

Myndband: Þessi leiðinlega hegðun virðist færast í aukana á Íslandi – „Þetta er ótrúlega glórulaust“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stuðningsmenn vildu svör frá framherjanum í miðjum fagnaðarlátum

Stuðningsmenn vildu svör frá framherjanum í miðjum fagnaðarlátum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda

Áfall í herbúðum Arsenal – Meiddur eftir helgina og tímabilið á enda
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka

Telur að það komi mikill hiti á Arnar ef hann heldur áfram að hundsa Viktor Bjarka
433Sport
Í gær

Segir frá síðustu skilaboðunum sem hann fékk áður en bróðir hans tók eigið líf

Segir frá síðustu skilaboðunum sem hann fékk áður en bróðir hans tók eigið líf
433Sport
Í gær

Katrín ósátt með ummæli Jóns um rassgatið á Allison – „Hann þarf að passa sig“

Katrín ósátt með ummæli Jóns um rassgatið á Allison – „Hann þarf að passa sig“
Hide picture