fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Helsti bandamaður Trump á Grænlandi flúinn úr landi – Missti konuna og lífsviðurværið

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 17. apríl 2026 19:30

Boassen er hataður í Grænlandi. Skjáskot/SkyNews

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grænlendingurinn Jørgen Boassen, sem komst í heimsfréttirnar fyrir stuðning sinn við Donald Trump Bandaríkjaforseta og studdi tilraunir hans til að innlima Grænland í Bandaríkin, er flúinn úr landi. Hann missti bæði konuna og lífsviðurværið á Grænlandi og var ekki vært þar.

Greint er frá þessu í danska blaðinu Jyllands Posten.

Boassen, sem er 52 ára múrari, hefur ítrekað komist í fréttir bæði á Grænlandi og víðar fyrir uppátæki sín í tengslum við stuðning við Trump og aðra öfga hægrimenn í Bandaríkjunum. Hann var til að mynda leiðsögumaður Donald Trump yngri og Charlie Kirk þegar þeir heimsóttu eyjuna í janúar árið 2025.

Þá skipulagði hann einnig hundasleðakeppni fyrir heimsókn varaforsetans J.D. Vance í mars árið 2025. Dagblaðið New York Times lýsti þá Boassen sem “aðdáanda Trump númer 1 í Grænlandi.”

Eðlilega hefur þessi hegðun farið illa í marga Grænlendinga, sem óttast innlimun eða jafn vel hernaðarárás Bandaríkjamanna á eyjuna eftir sífelldar hótanir Trump. Yfirgnæfandi meirihluti Grænlendinga er á móti Trump og yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni.

Sjá einnig:

Grænlenskur múrari gaf Trump hugmyndina um bandarískt sjúkraskip til Grænlands

Eins og sagt er í Jyllands Posten hefur Boassen nú þurft að flýja land þar sem honum er ekki lengur vært á Grænlandi. Hann missti bæði eiginkonuna og lífsviðurværið sitt þar sem fólk vildi ekki stunda viðskipti við hann.

Áður hefur verið greint frá því að Boassen hafi fengið morðhótanir fyrir daður sitt við Trump og aðra hægri öfgamenn. Þá hefur hann einnig orðið fyrir líkamsárásum, til að mynda á veitingastöðum.

Þegar veist hefur verið að Boassen hefur hann oft svarað í sömu mynt. Hefur hann meðal annars verið settur í bann á sumum veitingastöðum, hótelum og sundlaugum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir