fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 07:21

Þorsteinn R Hermannsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Betri samgangna samþykkti á fundi sínum þann 7. apríl síðastliðnum að ráða Þorstein R. Hermannsson sem framkvæmdastjóra Betri samgangna og var gengið frá ráðningu hans fyrir helgi. Alls bárust níu umsóknir um starfið.

Í tilkynningu kemur fram að starf framkvæmdastjóra hafi verið auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, nýju félagi sem tekur yfir rekstur og þjónustustýringu Strætó og mun síðar sjá um rekstur Borgarlínu.

„Eftir vandað ferli undir stjórn VinnVinn var niðurstaða stjórnar að ráða Þorstein í starfið en hann kom best út í samanburði við aðra umsækjendur. Við bjóðum Þorstein velkominn til starfa hjá Betri samgöngum í þessu nýja hlutverki og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann og annað starfsfólk fyrirtækisins“, segir Eyjólfur Árni Rafnsson, stjórnarformaður Betri samgangna.

Þorsteinn er með meistarapróf í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington og lauk BSc-námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Betri samgöngum frá árinu 2021 en var þar áður samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá  2016 til 2021.

Þorsteinn hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og samgönguverkfræðingur og starfaði um árabil hjá verkfræðistofunni Mannviti , meðal annars sem fagstjóri samgangna og sem sviðsstjóri umferðar- og  skipulagssviðs. Þá var Þorsteinn verkfræðingur samgönguáætlunar í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu árin 2010 til 2012.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“