fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Trump ræðst harkalega á páfann: „Ekki að standa sig mjög vel“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. apríl 2026 07:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti lét óvenju hörð orð falla í garð Leós páfa í gærkvöldi og sakaði hinn bandaríska leiðtoga kaþólsku kirkjunnar um að vera bæði mjög frjálslyndan og of hallan undir róttæka vinstrið.

Ummælin féllu bæði í langri færslu Trumps á samfélagsmiðlum og síðar í samtali við blaðamenn eftir að hann kom til Washington frá Flórída í gærkvöldi.

„Ég er ekki aðdáandi Leós páfa,“ sagði Trump og bætti við að hann teldi páfann „ekki vera að standa sig mjög vel“.

Tilefni gagnrýninnar virðist hafa verið orð Leós um helgina þar sem hann gaf í skyn að „blekking um almætti“ væri meðal þess sem knýr áfram stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Þótt páfar og forsetar hafi oft verið á öndverðum meiði í alþjóðamálum er afar sjaldgæft að orðaskiptin verði jafn persónuleg og hörð.

Í færslu sinni sagði Trump að páfinn væri „VEIKUR gagnvart glæpum og hræðilegur í utanríkismálum“ og bætti við: „Ég vil ekki páfa sem telur í lagi að Íran hafi kjarnorkuvopn.“

Sömu sjónarmið ítrekaði hann síðar við blaðamenn.

Trump lét þó ekki þar við sitja heldur tengdi gagnrýni sína einnig öðrum alþjóðamálum. Hann sagðist ekki vilja „páfa sem telur hræðilegt að Bandaríkin hafi ráðist á Venesúela“, með vísan til aðgerða stjórnar hans gegn Nicolás Maduro fyrr á árinu.

Forsetinn hélt því jafnframt fram að staða Leós í Vatíkaninu tengdist því að hann væri Bandaríkjamaður.

„Ef ég væri ekki í Hvíta húsinu, væri Leó ekki í Vatíkaninu,“ skrifaði Trump og bætti við: „Leó þarf að taka sig á sem páfi, nota heilbrigða skynsemi, hætta að þjóna róttæka vinstrinu og einbeita sér að því að vera frábær páfi, ekki stjórnmálamaður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“