fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Málþófið heldur áfram þrátt fyrir yfirlýsingar ríkisstjórnar – Veiðigjöldin til umræðu

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 10. júlí 2025 13:19

Stjórnarandstæðingar halda áfram að tala um veiðigjöld. Skjáskot/Alþingi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftir yfirlýsingu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um vörn lýðræðisins og heitar umræður um fundarstjórn forseta í morgun þar sem hver stjórnarliðinn lýsti því yfir að nú yrði kosið um veiðigjaldafrumvarpið er umræðan um veiðigjöldin aftur komin á dagskrá þingsins og málþóf stjórnarandstöðunnar heldur áfram.

Umræðan hefur nú staðið yfir í tæpar 157 klukkustundir og mun halda áfram. En sumir stjórnarandstæðingar, til dæmis Jón Gunnarsson, hafa lýst því yfir að talað yrði í allt sumar til þess að hindra framgang málsins.

Eftir að frumhlaup Hildar Sverrisdóttur í gærkvöldi þegar hún sleit þingfundi í óleyfi var boðað til umræðunnar í morgun. Töluðu stjórnarliðar með ákveðnum hætti og bjuggust margir við að nú færi að draga til tíðinda. Það er að 71. grein þingskapalaga yrði beitt til þess að stöðva málþófið og koma máli ríkisstjórnarinnar í gegn.

Það gekk hins vegar ekki eftir. Engar aðgerðir til að enda málþófið voru boðaðar af hálfu ríkisstjórnarinnar og heldur því málþófið áfram.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir