fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Fréttir

Heilbrigðisráðherra lofaði að ganga í mál Guðmundar Sölva en engar efndir hafa orðið – Söfnun sett af stað – „Þau þurfa bara aðstoð“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. janúar 2024 20:00

Guðmundur Sölvi og Guðni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Til að gera langa sögu stutta þá hafa foreldrar Guðmundar Sölva þurft að standa straum af kostnaði við þetta allt saman, en staðan er orðin sú að það er ekki til peningur fyrir þessu. Því leitum við til almennings um aðstoð,“ 

segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir um söfnun sem hún setti af stað í gær fyrir Guðmund Sölva Ármannsson. Guðmundur Sölvi er 14 ára og fæddur með tvíklofna vör og skarð allt aftur í mjúka góm (eða aftur í kok eins og það myndi kallast). Hann fór í sína fyrstu aðgerð tíu daga gamall en þá var gerð bráðabirgðalokun á vörinni á honum og varanleg lokun í desember sama ár. 

Mæðginin Ragnheiður og Guðmundur Sölvi
Mynd: Anton Brink

DV fjallaði um mál Guðmundar Sölva fyrir rétt tæpu ári, þar sagðist móðir hans, Ragnheiður Sölvadóttir í viðtali við DV vera þreytt á 13 ára baráttu við kerfið.

Sjá einnig: Ragnheiður þreytt á margra ára baráttu – „Fullkomið ferli myndi fela í sér að ég gæti sinnt barninu mínu en ekki kerfinu“

Í samtali við DV segist Katrín hafa sett söfnunina af stað eftir að hafa rætt hana vel við Ragnheiði. Þær tengjast nokkuð vel eða eins og Katrín segir: „Ég er í stjórn skátafélagsins sem bæði Ragga og Guðmundur eru í. Börnin mín og Guðmundur eru saman í skátunum. Auk þess sem elsta dóttir mín var á leikskólanum hjá Röggu.

Sjálf á ég barn sem fæddist með klumbufót og ég hef aldrei þurft að borga neitt fyrir meðferð á fætinum, en það voru aðgerð, gifs og spelkur.  Bara verulega sorglegt og fáránlegt að það sitji ekki allir við sama borðið.  Börnin geta ekkert að því gert að þau fæðist með einhverja fæðingagalla,“ segir Katrín. 

Katrín
Mynd: Facebook

Fengu áheyrn hjá heilbrigðisráðherra og svo ekkert meira

DV greindi frá því miðjan febrúar í fyrra að mæðgin hefur farið á fund Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem hefði lofað að ganga í að skoða þeirra mál. Ekkert hefur heyrst frá ráðherra síðan.

Sjá einnig: Guðmundur Sölvi gekk á fund Willum Þórs og afhenti honum gögn sín – „Pínu hissa á öllu þessu ferli“

Sjá einnig: Mál Guðmundar Sölva í biðstöðu – „Ég vil ekki þurfa að taka þennan slag lengur“

„Ragga sjálf er að bugast og þau þurfa bara aðstoð,“ segir Katrín. „Guðmundur Sölvi  hefur farið samtals í 13 aðgerðir og þetta er hvergi búið.  Hann þarf á miklum tannleiðréttingum að halda, það kostar slatta en sjúkratryggingar taka ekki þátt í þeim kostnaði. Einnig þarf hann að fara í frekari aðgerðir á kjálka sem er ekki niðurgreitt af sjúkratryggingum í hans tilfelli.“

„Hún Katrín kom þessu öllu af stað og á bestu MESTU þakkir fyrir,“ segir Ragnheiður í samtali við DV.  Í gær sagði Ragnheiður frá því að fjölskyldan skuldar um 640.000 krónur vegna tannréttinga Guðmundar Sölva. „Ég fæ að greiða niður þessar 640 þúsund í 16 mánuði sem gera 40 þúsund per mánuð, og ef ég held áfram með hann í þessum tannréttingum þá safnast bara á reikninginn og það borgar sig ekki, við þurfum að lifa á einhverju líka! En ég vona að SÍ og heilbrigðisráðuneyti fari að girða sig í brók svo fleiri skarðabörn lendi ekki í þessu rugli. Ég bara get ekki meira því ég er buguð ásamt föður og syni.“

Góð viðbrögð við söfnuninni

Katrín segir viðbrögð við söfnuninni hafa verið góð nú þegar og á innan við sólarhring eru komnar um 100.000 krónur inn á reikninginn.

Þeir sem vilja og tök hafa á að styrkja fjölskylduna gera lagt inn á neðangreindan reikning, sem er á nafni Katrínar:

Reikningur 0370-22-040390
Kennitala 010483-4849

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“
Fréttir
Í gær

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harry Potter-stjarnan opnar sig um vinslitin við JK Rowling

Harry Potter-stjarnan opnar sig um vinslitin við JK Rowling
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gullúr sem fannst á líki eins af farþegum Titanic seldist á rúmar 200 milljónir króna

Gullúr sem fannst á líki eins af farþegum Titanic seldist á rúmar 200 milljónir króna