fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Varar við óprúttnum aðilum sem reyna að hafa minningu Hrafns að féþúfu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 9. mars 2024 18:56

Hrafn Jökulsson féll frá í september 2022

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Engin söfnun er í gangi fyrir börnum fjölmiðlamannsins Hrafns Jökulssonar, sem féll frá í september 2022. Þetta áréttar Illugi Jökulsson, bróðir Hrafns, í færslu á Facebook-síðu sinni. Tilefnið er að óprúttnir aðilar eru sagðir ganga í hús og safna peningum í þetta tiltekna málefni.

Illugi varar við þessu og biður fólk að dreifa því sem til flestra að varast þessa aðila sem reyna að hafa minningu Hrafns, sem var elskaður og dáður af fjölda fólks, að féþúfu.

„Börnunum hans Hrafns bróður míns hefur borist til eyrna að einn eða tveir menn gangi um þessar mundir í hús eða gefi sig jafnvel að fólki á götum úti, biðji um fé og segist vera að safna peningum til styrktar þeim fjórum. Af því tilefni vilja þau að fram komi að engin slík söfnun er í gangi á þeirra vegum, þau vita ekkert um þetta og þeim væri heldur engin þægð í slíkri söfnun,“ skrifar Illugi á Facebook-síðu sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir