Hlutverk þyrlanna var að ráðast á flugvöllinn og flytja um 100 fallhlífahermenn þangað. Þetta var liður í að ná höfuðborginni Kyiv á vald Rússa í upphafi stríðsins og brjóta varnir Úkraínumanna aftur áður en þeir næðu að skipuleggja þær.
Fallhlífahermennirnir náðu fljótt fótfestu á flugvellinum, sem er á vesturbakka Dnipro, um 10 km frá borgarmörkum Kyiv og um 30 km frá miðborginni. Til varnar á flugvellinum voru aðeins nokkur hundruð léttvopnaðir hermenn úr þjóðvarðliðinu.
Síðar um daginn sýndi CNN myndir af því þegar fallhlífahermennirnir náðu fótfestu á flugvellinum og nágrenni hans á meðan þeir skiptust á skotum við Úkraínumenn.
Ekki var langt síðan innrásin hófst og nú var að sjá að með djarfri og stórri aðgerð hefði Rússum tekist að ná frumkvæðinu og koma sér fyrir á þröskuldinum við Kyiv.
Næsta skref Rússa var svo sem ekkert leyndarmál því vestrænar leyniþjónustustofnanir höfðu komist yfir áætlunin áður en af innrásinni varð og höfðu látið Úkraínumönnum hana í té. Flugvöllurinn átti að verða virki Rússa og ætluðu þeir að flytja mikið magn hergagna og fjölda hermanna þangað. Hermennirnir áttu síðan að sækja inn í Kyiv og ná alla leið inn í miðborgin.
„Þeir áttu að komast eins hratt inn í miðborg Kyiv og þeir gætu og draga rússneska fánanna að húni á stjórnarbyggingu,“ sagði John Spencer, bandarískur sérfræðingur, í samtali við Los Angeles Times.
Liðsmenn úrvalssveita hersins áttu að finna og taka lýðræðislega kjörna leiðtoga Úkraínu höndum eða taka þá af lífi. Á sama tíma átti liðsauki, þar á meðal herlögreglumenn, að kæfa andstöðu við hernámið. Herlögreglumennirnir voru þá á leið til Kyiv frá landamærum Úkraínu og Hvíta-Rússlands og var reiknað með að þeir kæmu til Kyiv á fyrsta sólarhring innrásarinnar.
Þegar þar væri komið við sögu, væri búið að ryðja brautina fyrir að setja rússneska leppstjórn á laggirnar og hefjast handa við að kæfa alla andstöðu niður um allt land.
Áherslan var á að sækja hratt fram og ná stjórn á höfuðborginni á skömmum tíma, í raun staðfærð útgáfa af því sem Rússar gerðu á Krím 2014.
En fljótlega eftir að Rússar náðu Antonov-flugvellinum á sitt vald kom í ljós að þeir höfðu misreiknað sig illilega. Þeim tókst svo sem að ná flugvellinum á sitt vald en Úkraínumenn héldu uppi stöðugum árásum á flugvöllinn og það gerði að verkum að ekki var hægt að nota hann til að taka á móti liðsauka. Rússar héldu flugvellinum í nokkrar vikur en það gagnaðist lítið því Úkraínumenn höfðu náð að valda svo miklum skemmdum á honum að hann var í raun gagnslaus.
En Rússar sóttu ekki aðeins að flugvellinum því þeir réðust samtímis á Kharkiv, Donbas og svæði í suðurhluta landsins. Þetta var miklu stærri og meiri aðgerð en rússneski herinn réði við að mati sérfræðinga. Þeir teygðu svo mikið á birgðalínum sínum og stuðningskerfum hersins að þeir voru komnir að þolmörkum sagði Dara Massicot, hjá varnarmálahugveitunni Rand í Washington, í tímaritinu Foreign Affairs.
Hin metnaðarfulla en illa útfærða áætlun Rússa kom upp um veikleika rússneska hersins og gaf Úkraínumönnum færi á því snemma í stríðinu að gera stóran hluta af bestu hermönnum Rússa óvirka sem og mikið af hergögnum þeirra.