fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Sex slösuðu sig á rafhlaupahjóli í nótt – Tveir fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttöku

Björn Þorfinnsson
Sunnudaginn 7. ágúst 2022 07:51

Lögreglumaður við störf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Talsvert var um að fólk væri að slasa sig á rafhlaupahjólum í nótt. Í dagbók lögreglu er greint frá sex slíkum tilvikum fram eftir nóttu. Tveir þeirra voru það illa slasaðir að viðkomandi voru fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. Einn ætlaði hins vegar að koma sér sjálfur á spítala eftir fallið. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu núna í morgunsárið.

Þá er greint frá tveimur tilvikum þar sem lögreglu var tilkynnt um að einstaklingar höfðu fallið í jörðina með ótilgreindum hætti.

Talsvert var um bílstjórar hafi verið stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.

Óskað var eftir aðstoð lögreglu að skemmtistað í miðbænum vegna líkamsárásar rétt fyrir miðnætti. Einn einstaklingur var handtekinn á vettvangi og hann látinn laus að lokinni skýrslutöku.

Tvö önnur tilvik komu upp á skemmtistöðum þar sem ölvaðir einstaklingar voru til vandræða. Einn þeirra vildi ekki segja til nafns og var hann því látinn dúsa í fangaklefa í nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður