fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Stórir bólusetningardagar í næstu viku – Stefnt á að allir verði þá búnir að fá eina sprautu

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 18. júní 2021 08:00

Bólusetning með Pfizer bóluefni í Laugardalshöll Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í næstu viku verða þrír stórir bólusetningardagar. Á þriðjudaginn verður bólusett með bóluefninu frá Janssen, á miðvikudaginn bóluefninu frá Pfizer/BioNTech og á fimmtudaginn með bóluefninu frá AstraZenica.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag og hefur eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún sagði að ekki væri öruggt að fimmtudagurinn verði stór dagur, það velti á hvort stór sending, sem von er á, verði komin.

Hún sagði að um 9.000 skammtar séu til fyrir hvern þessara daga.

Þegar lokið verður við bólusetningar þeirra sem eru boðaðir til þeirra verður opið hús þar sem sprautað verður með afgangsskömmtum. Næsta vika verður síðan síðasta vikan þar sem megináherslan verður á að gefa fyrsta skammt bóluefnanna. Eftir það verði áhersla lögð á að gefa seinni skammtinn. „Svo förum við að snúa okkur að öðrum hópum, til dæmis fólki sem býr á landinu en er ekki með kennitölu og fólki sem þegar er með mótefni,“ er haft eftir Ragnheiði.

239.000 manns hafa verið bólusettir hér á landi fram að þessu. Af þeim hafa 153.800 lokið bólusetningu.

Ragnheiður sagðist telja að Íslendingar hafi staðið sig vel í bólusetningarátakinu miðað við aðrar þjóðir. Hún sagði þetta meðal annars skýrast af sterkri menningu fyrir bólusetningum hér á landi.

„Ég held að flestir Íslendingar séu mjög jákvæðir fyrir bólusetningum. Hlutföll á bólusetningum barna eru yfirleitt á bilinu 90 til 95 prósent. Það er lítið um að fólk sé að hafna Covid-sprautunum eða tilkynna að það sé hrætt við þær, þótt það séu kannski einstaka háværar gagnrýnisraddir,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Í gær

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“