

Þrettán kynlífstækjaverslanir eru nú starfandi á Íslandi og virðist markaðurinn bara vaxa með hverri nýrri verslun sem bætist í flóruna. Flestar þeirra virðast aðeins bjóða upp á netverslun, en þó eru þess dæmi að verslun með hjálpartæki ástarlífsins í hefðbundnu verslunarformi þrífist vel. Verslunin Blush er sjálfsagt skýrasta dæmið um það, en eigendur hennar fluttu sig nýverið í töluvert stærra húsnæði á Dalvegi í Kópavogi.
Eins og í mörgum öðrum bransanum hér á landi virðist markaðurinn einkennast af tveimur risum, og svo talsvert fleiri minni verslunum, sem sumar virðist hafa ákveðnar sérhæfingar.
DV skoðaði fólkið á bak við verslanirnar og rekstur þeirra.
Ljóst er að markaðurinn fyrir kynlífstæki á Íslandi er engin smásmíð en samanlögð velta fyrirtækjanna nemur milljörðum. Raunar velti Blush ein og sér 220 milljónum árið 2019 og skilaði 40 milljónum í hagnað. Fyrirtækið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir 2020 enn, en hans er þó líklegast að vænta á næstu vikum.
Eigandi Blush er viðskiptakonan Gerður Huld Arinbjarnardóttir. Gerður stofnaði félagið BSH15 árið 2015 og rekur hún verslunina á því félagi. Samkvæmt ársreikningi sem skilað var inn í fyrra fyrir árið 2019 störfuðu 21 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur samtals tæpum 28 milljónum króna. Bæði veltan og hagnaðurinn höfðu aukist töluvert frá árinu áður, en árið 2018 seldi verslunin þjónustu og vörur fyrir 200 milljónir og hagnaðist um 36 milljónir, rúmar.
Samanlagður hagnaður Blush fyrir árið 2018 og 2019 nemur því 77 milljónum og var eigið fé félags Gerðar í lok árs 2019 115 milljónir króna. Gerður greiddi sér 27,4 milljónir í arð árið 2019, en 26 milljónir þar áður.
Þá er ljóst að Blush hefur lagt mikla áherslu á markaðsstarf, og þá sér í lagi á samfélagsmiðlum, því rétt tæplega 13 þúsund manns hafa nú líkað við verslunina á Facebook og er hún lang vinsælust allra kynlífstækjaverslana þar.
Adam & Eva er ein elsta hjálpartækjaverslun landsins, og muna eflaust margir eftir stórri Adam & Evu verslun við Kleppsveg, sem Reykjavíkurborg ætlar nú að breyta í leikskóla. Verslunin flutti sig á þessu ári á Smiðjuveg í Kópavogi en félagið rekur einnig verslun á Akureyri undir nafninu Eros, sem er líklega eina kynlífstækjaverslunin utan höfuðborgarsvæðisins.
Verslunin er rekin á félaginu HTC ehf., sem er að fullu í eigu Þorvalds Steinþórssonar.
Samkvæmt ársreikningum skilaði félagið töluvert minni hagnaði árið 2019 en stærsti samkeppnisaðilinn, Blush, eða um 8 milljónum, samanborið við um 4 milljónir árið 2018. Þá minnkaði veltan smávægilega á milli ára og fór úr 129 milljónum í um 123. Þá er eigin fjár staða HTC ehf. aðeins um 16 milljónir.
Þá vekur athygli að launakostnaður Adam & Evu og Blush er nánast nákvæmlega sá sami, þrátt fyrir að Blush hafi selt nánast tvöfalt meira á sama tímabili.
Netverslun Cupid.is er rekin af fyrirtækinu Egat ehf., sem er í eigu hjónanna Eiríks Þórs Sverrissonar og Gunnlaugar Kristínar Ingvadóttur. Samkvæmt upplýsingum sem aðgengilegar eru á vef Skattsins, virðist rekstur kynlífstækjaverslunar vera hliðarverkefni þeirra hjóna, en samkvæmt ISAT númeri snýr starfsemi félagsins að smásölu á matvælum í sérverslunum. Hinsvegar segir í stofngögnum félagsins að tilgangur þess sé „sala á heilsuvörum í smásölu og heildsala auk reksturs nuddstofu ásamt innflutningi því tengt […].“
Samkvæmt nýjasta ársreikningi félagsins seldi félagið vörur fyrir tæpar 15 milljónir árið 2019, og um tíu milljónir árið áður. Rekstrarkostnaður félagsins árið 2019 nam svo til því sama. Nam hagnaður félagsins um 70 þúsund krónum.
Scarlet bættist í hóp íslenskra kynlífstækjaverslana árið 2019 og liggja því aðeins upplýsingar fyrir um reksturinn fyrsta árið, sem lítið er að marka. Verslunin fagnaði tveggja ára afmæli sínu nú í júní og hélt upp á það með ríkulegum afsláttarkjörum fyrir viðskiptavini sína. Ljóst er að verslunin hefur lagt á sig vinnu í markaðsmálum og fylgja nú um tvö þúsund manns versluninni á samfélagsmiðlum.
Scarlet er rekið á félaginu MGC ehf., í eigu Elínar Bjargar Ragnarsdóttur.
Rekstraraðili kynlífstækjaverslunarinnar Hermosa.is er félagið Abnormal Ventures ehf. í eigu Kristínar Bjargar Hrólfsdóttur og Vilhjálms Þórs Gunnarssonar.
Félagið er það eina sem skilað hefur ársreikningi fyrir síðasta ár og er óhætt að óska þeim Kristínu og Vilhjálmi til hamingju með árangurinn. Veltan fjórfaldaðist á milli áranna 2020 og 2019 er hún fór úr rúmum fimm milljónum í tæpa 21 milljón. Þá fór hagnaðurinn úr hálfri milljón í tvær og hálfa. Eigið fé félagsins, sem aðeins er þriggja ára gamalt nemur nú 3,5 milljónum.
Athygli vekur að tilgangur félagsins, eins og áður, er skráður allt annar en rekstur kynlífstækjaverslunar. Abnormal Ventures ehf., er nefninlega skráð sem „önnur ótalin fjármálaþjónusta, þó ekki vátryggingafélag og lífeyrissjóður.“
Um langa hríð hefur félagið Á. Jónsson ehf. rekið verslunina Tantra.is í Hlíðasmára í Kópavogi. Verslunin, ein fárra sem enn gera út hefðbundna og staðbundna verslun í þessum bransa var stofnuð 2002 og fagnar því 20 ára afmæli sínu á næsta ári.
Árni Jónsson er eini eigandi félagsins Á. Jónsson ehf. sem rekur Tantra.is.
Félagið seldi vörur fyrir um tæpar 19 milljónir árið 2019 og hafði veltan þá lækkað um hálfa milljón á milli ára. Hagnaður af rekstrinum nam um hálfri milljón árið 2019 og rétt rúmri milljón þar áður.
Romeo er netverslun sem bættist í flóruna í miðju Covid fári. Netverslunin er rekin á félaginu AL 1015 ehf., sem stofnað var í mars á þessu ári. Eigendur félagsins eru Örn Steinar Arnarson og Jerry Leal.
Vegna aldurs félagsins hefur engum gögnum verið skilað inn um reksturinn.
Bedroom.is er rekin undir félaginu LH2020 ehf., sem, eins og nafnið bendir kannski til, var stofnað árið 2020 og virðist því vera um aðra „Covid-hugmynd“ að ræða.
Engum ársreikningum hefur verið skilað, og sökum aldurs félagsins væri vafalaust lítið að marka þá. Eigandi félagsins er hinn ungi Hafsteinn Viðar Halldórsson, en hann fagnar 30 ára afmæli sínu undir lok þessa árs.
Hafsteinn hefur átt í nógu að snúast undanfarið, því fyrr það sama ár stofnaði hann einnig félagið Pineapple ehf., sem skráð er í fyrirtækjaskrá sem auglýsingastofa.
Losti bættist í hópinn árið 2019 er þær Saga Lluvia Sigurðardóttir og Eva Brá Önnudóttir stofnuðu fyrirtækið Los4 ehf. Eva Brá seldi síðan sinn hlut í fyrirtækinu og kom Hjörvar Hermannsson inn sem eigandi.
Engin marktæk gögn liggja fyrir um rekstur félagsins enn sem komið er, enda um ungt félag að ræða.
Heimkaup er líklega ein allra stærsta netverslun landsins og hefur velta hennar án efa aukist gríðarlega í Covid, enda ákjósanlegur valkostur fyrir þúsundir sem ekki komast að heiman. Inni á vef Heimkaupa er töluvert úrval af kynlífstækjum til viðbótar við margt annað.
Stærsti eigandi félagsins samkvæmt ársreikningi Heimkaupa árið 2019 var Skeljungur. Þar á eftir komu félögin Hyrna, Kaskur, Magnason Consulting, Arro Investments o.fl. Samkvæmt skráningu um raunverulegan eiganda hjá fyrirtækjaskrá er Árni Pétur Jónsson eigandi að um þriðjungs hlut í versluninni. Ekki er neinum gögnum að flétta um hve stór hluti sala kynlífstækja er af milljarðaveltu Wedo ehf., rekstrarfélags Heimkaups, og því óljóst hvar í röðinni Árni Pétur Jónsson og kollegar hans hjá Heimkaup standa á listanum yfir stærstu kynlífstækjasala landsins.
Rekstraraðili Meyju er félagið Skelkur ehf., sem hefur þann tilgang að framleiða hugbúnað og virðist sala á kynlífstækjum vera nokkurs konar hliðarbissness fyrir eiganda Skelks, hana Ernu Ýr Öldudóttir.
Af ársreikningum félagsins að dæma virðist það reyndar ekki selja mikið af kynlífstækjum. Árið 2019 seldi félagið „textavinnu“ fyrir 1,5 milljónir og námu aðrar tekjur núll krónum. Árið 2020 seldi félagið aftur „textavinnu“ fyrir 1,3 milljónir, tæpar, en engar aðrar tekjur eru skráðar.
Hagnaður ársins 2019 nam um 400 þús krónum, en hrundi niður í 68 þúsund krónur í fyrra.
Lovísa hóf nýlega göngu sína í sístækkandi klúbbi kynlífstækjaverslana á Íslandi. Verslunin virðist vera að herja á Covid stemninguna í samfélaginu, enda eru skilaboðin efst á heimasíðunni: Ekki láta þér leiðast í sóttkví.
Samkvæmt ársreikningum félagsins JS1 ehf. er félagið í eigu Snorra Guðmundssonar. Félagið velti níu og hálfri milljón árið 2019 samanborið við 14 milljónir árið áður.
Kinky.is er eina verslunin á listanum sem ekki er rekin á félagi með takmarkaðri ábyrgð. Eigandi rekstursins, Fríður Esther Pétursdóttir, rekur netverslunina þess í stað á eigin kennitölu. Litlar upplýsingar eru því að hafa um gang verslunarinnar.