fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sauð upp úr fyrir utan Hvítahúsið Sportbar – Kallaður skítugur smurolíukarl

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 29. október 2020 18:20

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Til átaka kom milli tveggja ungra manna, af fremur litlu tilefni, fyrir utan skemmistaðinn Hvítahúsið Sportbar á Selfossi, sumarið 2018.

Maður sem þá var rétt rúmlega tvítugur var ákærður fyrir að hafa ráðist á annan mann fyrir utan umræddan stað og slegið hann ítrekað í höfuð og andlit með þeim afleiðingum að þolandinn hlaut heilahristing, opið sár á vanga og kjálkalið, yfirborðsáverka á augnlok og augnsvæði, og nefbrot.

Brotaþoli lýsti málsatvikum svo, eins og segir í dómi:

„Samkvæmt gögnum málsins kom brotaþoli á lögreglustöðina á Selfossi að morgni dags þann 12. júní 2018 til að leggja fram kæru á hendur ákærða vegna líkamsárásar fyrir utan Hvíta húsið á Selfossi aðfaranótt eða snemma morguns þann 9. júní 2018, um kl. 04:50. Kvaðst brotaþoli hafa verið staddur fyrir utan Hvíta húsið umrætt sinn og hafi verið að ræða við vinkonur sínar þegar ákærði hafi farið að angra hann. Hafi brotaþoli átt einhver orðaskipti við ákærða og m.a. sagt honum að þrífa í sér tennurnar þar sem ákærði hafi verið allur í tóbaki í munnvikum.
Hafi brotaþoli svo gengið burt frá ákærða, en allt í einu fengið högg í höfuðið aftan frá. Kvað brotaþoli að ákærði hefði slegið sig með krepptum hnefa fyrirvaralaust án þess að brotaþoli kæmi neinum vörnum við. Síðan hafi hnefahöggin dunið á andliti sínu. Kvað brotaþoli að ákærði hafi a.m.k. náð að slá sig 4 sinnum í andlitið með krepptum hnefa.
Þá skýrði brotaþoli frá því að hann hafi ekki slegið á móti og nánast ekki náð að verja sig þar sem hann hafi vankast við fyrsta höggið sem hafi komið aftan frá. Taldi brotaþoli að ákærði hefði staðið einn í þessu, en vinir ákærða hefðu verið þarna við og farið með ákærða burt eftir árásina. Kvaðst brotaþoli ekki hafa kallað eftir aðstoð lögreglu á vettvangi, en sér hafi verið ekið strax á sjúkrahúsið á Selfossi þar sem mikið hafi blætt úr nefi og skurði á kinn.
Kvaðst brotaþoli ekki þekkja neitt til ákærða og engar deilur hafi verið á milli þeirra og þetta hafi verið að tilefnislausu. Kvaðst brotaþoli hafa fengið afsökunarbeiðni frá ákærða, en gæti þó ekki annað en lagt fram kæru. Brotaþoli kvaðst sjálfur hafa verið undir áhrifum áfengis, en kvaðst ekki vita um ástand ákærða að því leyti.“
Ákærði lýsti atvikum þannig að brotaþoli hafi ávarpað sig að fyrra bragði og gert athugasemdir við að hann væri með tóbak í tönnunum. Hafi ákærði hreinsað tóbakið burtu og spurt brotaþola hvort tóbakið væri farið. Hafi brotaþoli þá kallað hann skítugan smurolíukarl. Hann hafi síðan engt hann mörgum sinnum til að kýla sig. Sagðist ákærði hafa kýlt hann laust og ekki meitt hann. Hann kannaðist við að hafa sent honum afsökunarbeiðni á Messenger daginn eftir.
Dómurinn úrskurðaði hinn ákærða sekan en taldi rétt að fresta því að gera honum refsingu og ákvarða lágar skaðabætur fyrir árásina þar sem brotaþoli hefði átt upptökin að átökunum. Skal hann greiða brotaþola 150.000 krónur og 176 þúsund krónur í málskostnað.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands í gær og má lesa hann hér.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi