fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

COVID-19 smit á leikskóla í Breiðholti

Auður Ösp
Fimmtudaginn 20. ágúst 2020 11:51

mynd/reykjavik.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barn á leikskólanum Hálsaskógi í Breiðholti greindist í dag með virkt Covid-19 smit. Leikskólanum hefur verið lokað í dag og börnin send heim.

Þetta staðfestir Ásgerður Guðnadóttir leikskólastjóri við blaðamann DV.

Að sögn Ásgerðar er um að ræða 75 börn á leikskólanum og hafa þau öll verið sótt af foreldrum sínum. Leikskólinn er í tveimur húsum og hefur öðru þeirri verið lokað, segir Ásgerður.

Samkvæmt heimildum DV er jafnframt grunur um að starfsmaður sé smitaður. Starfsmenn á deild barnsins hafa verið sendir í tveggja vikna sóttkví og hafa aðrir starfsmenn verið sendir í tveggja vikna varúðarsóttkví þar til niðurstöður prófa liggja fyrir.

Ekki er vitað hvort allir starfsmenn verða sendir í tveggja vikna sóttkví, en foreldrum var sendur eftirfarandi póstur:

Kæru foreldrar,

Eins og mörg ykkar vita nú þegar þá var barn að greinast með covid í Koti Hálsaskógi og eins er grunur um smit hjá starfsmanni. Við þurfum því að loka deild barnsins (Birkilundi) og börn og starfsmenn þeirrar deildar að fara í sóttkví í tvær vikur. Hinar tvær deildirnar verða einnig lokaðar þangað til starfsmaðurinn fær niðurstöður úr sinni skimun.

Ég mun halda ykkur upplýstum og bið ykkur því að fylgjast vel með tölvupósti.

Kær kveðja,
Ásgerður

Hlutfallslega fá smit af COVID-19 hafa greinst hjá börnum á leik- og grunnskólaaldri, flest börn fá væg einkenni og einnig benda upplýsingar til að börn smiti sjaldan aðra.

Uppfært kl. 13.11: Ljóst er að aðeins sú deild leik­skól­ans þar sem smitið kom upp mun fara í sótt­kví í 14 daga. Leikskólinn verður opinn að öðru leyti. Helgi Gríms­son, sviðsstjóri skóla- og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar staðfestir þetta í samtali við mbl.is. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“