„Vitleysingar og fávitar, kratasamtök og idíótar, fávitar sem ekki ráða við nokkurn skapaðan hlut……Viðurstyggilegir helvítis bjálvar og mannleysur.“
Þessi orð eru höfð eftir Davíð Oddsyni, ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, í nýrri ævisögu Halldórs heitins Ásgrímssonar, sömuleiðis fyrrverandi forsætisráðherra. Þeir sem eru eldri en tvævetra ættu að muna að þeir tveir voru nánir samstarfsmenn um árabil.
Í bókinni er vitnað í minnisatriði ráðherra af fundum ríkisstjórnarinnar þar sem lýst er orðrétt hvernig Davíð Oddsson talaði.
Hringbraut vitnar í umrædda bók og segir að Davíð hafi stundum verið viti sínu fjær á ríkisstjórnarfundum. Orð hans hér fyrir ofan ku hafa beinst að Flugleiðum.
Ekki kemur fram hvers vegna Davíð var svo illa við Flugleiðir umrætt skipti. Ekki er harla ólíklegt að að það tengist komu Falun Gong til landsins árið 2002. Þá vildi ríkisstjórnin banna iðkendum Falun Gong að koma um borð í Flugleiðavélar.
Samkvæmt Hringbraut úthúðaði Davíð ekki einungis Flugleiðum. Á ríkisstjórnarfundi þann 21. nóvember 2003 er hann sagður hafa kallað ónefnda athafnamenn „vafasama pappíra og glæpahyski“.