fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Þetta eru mennirnir sem Dýrfinna segir hafa ráðist á sig og Þórð: „Þeir hafa ekkert siðferði“

Hjálmar Friðriksson
Þriðjudaginn 2. janúar 2018 23:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðfaranótt Þorláksmessu réðust þrír karlmenn inn í vinnustofu í Reykjavík og lúskruðu á parinu Dýrfinnu Benitu, tónlistar- og myndlistarkonu, og Þórð Inga Jónsson tónlistarmann, betur þekktum sem Lord Pusswhip. Að sögn Dýrfinnu má rekja árásina til flokkadrátta í kjölfar þess að hún sakaði fyrrverandi kærasta sinn, Inga Kristján Sigurmarsson, um nauðgun. Ingi Kristján er þekktur fyrir að hafa kallað Egil Einarsson, Gillzenegger, „rapist bastard“.

Málið hefur tvístrað listahópum svo sem RWS, Grandabræðrum og Skiltamálun Reykjavíkur, en hluti meintra árásarmenn voru meðlimir í þeim öllum. RWS er hópur sem stendur að baki veggjalist eða veggjakroti og má sjá skammstöfunina víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Grandabræður er hópur hönnuða og myndlistarmanna frá Listaháskóla Íslands sem hafa staðið að baki ýmsum viðburðum svo sem Happy Festival. Skiltamálun Reykjavíkur er fyrirtæki sem setur upp veggverk listamanna, svo sem Ragnars Kjartanssonar í Breiðholti.

Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir í samtali við DV að rannsókn málsins sé nýbyrjuð og þann 27. desember hafi verið tekin skýrsla af brotaþolum.

Braut tönn

Dýrfinna greindi frá málinu á Facebook-síðu sinni á Þorláksmessu. „Klukkan sex í morgun var ráðist inn í stúdíó þar sem ég og kærasti minn Þórður og vinir okkar, Marteinn og Alfreð, vorum að vinna saman í tónlist og eiga góðar stundir. Það var bankað á hurðina og Þórður fer til dyra til að athuga hver væri við. Er hann opnar hurðina þá grípur Brynjar Andrésson, þekktur sem Bibbi eða Kiddo, í hárið á honum og byrjar að kýla hann ítrekað í andlitið og fleygja honum um vinnustofuna, með Brynjari í för eru bræðurnir Högni Þorkelsson, þekktur sem Hógó, og Daníel Stefán Þorkelsson, þekktur sem Daníel Bachman eða DUST,“ skrifaði Dýrfinna. Viðurnefnin Kiddo og Dust vísa til veggjakrots eða „graff“ sem má sjá víða í Reykjavík.

Dýrfinna segir í samtali við DV að bæði hún og Þórður Ingi séu lemstruð eftir árásina. Hún hafi slasast í bakinu enda bakveik fyrir en Þórður hafi brotið tönn, fengið vægan heilahristing og sé nú marinn og bólginn á andliti og höfði. Hún segir að lögregla hafi mætt á vettvang en þá hafi mennirnir þrír verið horfnir á bak og burt.

Hún segir að þau séu bæði slösuð. Hann hafi brotið tönn meðan hún sé með verk í bakinu.
Dýrfinna og Þórður Hún segir að þau séu bæði slösuð. Hann hafi brotið tönn meðan hún sé með verk í bakinu.

Tilraun til þöggunar

Dýfinna segist fullviss um ástæðu árásarinnar. Hún telur þetta hafi verið tilraun til þöggunar vegna #metoo byltingarinnar en bæði hún og Þórður skrifuðu stöðufærslur þar sem þeir gagnrýndu fyrrnefnda listahópa. „Þessir ofbeldismen voru ekki ánægðir með það að ég opnaði mig og sagði sannleikann um þeirra siðferði. Þeir hafa ekkert siðferði. Ég þekki þessi stráka vel og var í þeirra vinahóp út af því að fyrrverandi kærasti minn, Ingi Kristján Sigurmarsson, er samstarfsmaður og vinur þessa árasamanna. Og hann er ástæðan sem þetta allt byrjaði. Þegar við vorum saman nauðgaði hann mér tvisvar og þessi vinhópur gerði lítið úr því og héldu áfram í vinasambandi og samstarfi við hann þrátt fyrir að vita að ég hafi verið beitt þessu ógeðslega ofbeldi,“ segir Dýrfinna.

Dýrfinna segist hafa búið með Inga Kristjáni í tvö ár í kjallara heimilis foreldra hans en þess má geta að hann er sonur Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi ráðherra VG.

Ekki hamingja í hug

Dýrfinna skrifaði stöðufærslu í október þar sem hún gagnrýndi listhópanna harðlega og þá sér í lagi RWS og Grandabræður en þá stóð yfir svokölluð Happy Festival í húsakynnum þeirra á Granda. Sú veisla hefur verið geysivinsæll undanfarin ár innan listaheimsins og var til að mynda sagt frá því á Vísi árið 2015 að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Andri Snær Magnason rithöfundur og Ingvar E. Sigurðsson leikari hafi allir mætt í veisluna. Í ár stigu á svið þjóðþekktir listamenn svo sem Ragnar Kjartansson, Emmsjé Gauti og Sigurður Guðmundsson, í það minnsta samkvæmt dagskrá, því sérsveitin stöðvaði hátíðarhöld.

Dýrfinna sagði að sér væri ekki hamingja í hug þegar hún hugsaði um þessa hátíð. Fyrir tveimur árum opnaði hún sig um kynferðisbrot sem hún hefur orðið fyrir af höndum fjögurra manna og birtust viðtöl við hana bæði á mbl.is og í Fréttatímanum. Í þeim viðtölum nefndi hún ekki hver hefði brotið gegn henni en sagði þó að fyrrverandi kærasti hafi ekki sýnt mikinn stuðning þegar hún kærði annan mann fyrir nauðgun.

„Þú ættir bara að fara“

Stuttu eftir að hún tjáði sig var henni boðið á fyrrnefnda Happy hátíð, sama ár og borgarstjóri mætti. „Allir voru þarna, ég var kurteis og dansaði með vinum mínum. Svo kemur minn fyrrverandi, sér mig og verður reiður. Af því að hann vildi ekki að ég „klagaði hann“. Hann fer að ýta mér. Ég dett en ýti til baka. Hann virðist tilbúinn að meiða mig í alvöru en vinir okkar stoppa bardagann. Ég hafði ekkert gert,“ segir Dýrfinna.

Meðlimir RWS hafi svo tekið hana afsíðis og reynt að róa hana. Þeir hafi spurt hana hvernig stæði á þessu ósætti og þá sagði hún þeim að „hann hafi nauðgað sér“ og óttaðist að hún myndi segja frá því. „Allir þeirra sögðu: „Við viljum trúa þér, en hann er vinur okkar og þetta gerðist fyrir svo löngu. Við erum að leigja þessa vinnustofu saman og halda þetta partý saman. Hann ræður hverjir mega vera á svæðinu. Þú ættir bara að fara.“ Eftir þetta hafa þeir látið eins og þetta atvik hafi ekki gerst og reynt að halda samskiptum við mig í lágmarki. Mér var ekki boðið á Happy Festival í ár,“ skrifaði Dýrfinna í október.

Dýrfinna segir að eftir þetta hafi sumir meðlimir fyrrnefndra listhópa verið með ógnandi tilburði sumra meðlima. „Brynjar hafði verið með ógnandi tilburði við Þórð eitt skipti, eftir #metoo póstinn minn. Eftir að hafa stutt mig opinberlega. Svo 21. desember gerir hann það sama við mig og 22. desember sé ég hann stara á mig úr hliðarsjón minni,“ segir Dýrfinna.

Vikið úr samtökunum

Eftir að Dýrfinna greindi frá málinu á Þorláksmessu skrifuðu bæði Grandabræður og Björn Loki, einn helsti meðlimur Skiltamálun Reykjavíkur, stöðufærslur á Facebook en þeim báðum verið eytt. Í færslu Grandabræðra sagði: „Brynjar Andrésson og Daníel Þorkelsson koma ekki lengur að Félagasamtökunum Grandabræður og muna ekki gera framvegis. Högni Kjartan Þorkelsson hefur aldrei komið að Grandabræðrum. Grandabræður styðja ekki ofbeldi.“

Björn Loki sagði á hinn boginn: „Ég hef sagt mig úr félagasamtökum RWS og Grandabræðra til að mótmæla ofbeldi tveggja meðlima hópanna á Þórð Inga. Ég tek þessu mjög alvarlega enda er verið að benda mig og alla mína vinnu síðustu ára við ofbeldisverk þeirra. Brynjar og Daníel munu ekki koma lengur að fyrirtækinu Skiltamálun Reykjavíkur.“

Dýrfinna segir viðbrögðin jákvæð að hluta en afhjúpandi: „Þau eru jákvæð en ekki tæmandi. Því þegar botninum er hvolft þá er engin afstaða þarna tekin gegn ofbeldinu sem ég þurfti að líða og hunsunina sem ég þurfti að upplifa trekk í trekk. Skilaboðin eru skýr: „það skiptir bara máli ef að karlmaður sé laminn, en ef kona er nauðguð þá ekki.“

Yfirlýsing frá Inga Kristjáni Sigurmarssyni:

Í DV í dag er birt viðtal við Dýrfinnu Benitu, sem var sambýliskona mín 2010-2011. Í viðtalinu endurtekur hún það sem hún sagði fyrst í viðtali við Fréttatímann sumarið 2015, að henni hafi verið nauðgað af fjórum mönnum. Ég einn er nú nafngreindur. Það er sárt að sitja undir ásökunum af þessu tagi enda um að ræða hegningarlagabrot sem þungar refsingar fylgja og rétt að taka fram að engin kæra hefur verið lögð fram á mig og hafna ég alfarið þessum ósönnu fullyrðingum.

Það er mjög ámælisverð fréttamennska að birta viðtal með svo alvarlegum ásökunum á hendur einstaklingi án þess að bera það undir viðkomandi þannig að hann geti borið hönd fyrir höfuð sér. Ég mun því íhuga réttarstöðu mína af þessu tilefni.

Rétt er að geta þess að blaðamaður DV reyndi að hafa samband við Inga Kristján við vinnslu fréttarinnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí