fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

90 prósenta munur á hæsta og lægsta verði

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 17. október 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag íslenskra bifreiðareigenda (FÍB) kannaði verð á umfelgun hjá 40 dekkjaverkstæðum vítt og breitt um landið. 90 prósent munur var á hæsta og lægsta verði. Hjá flestum fyrirtækjum er verið að bjóða sama verð fyrir þjónustuna núna og í vorkönnun FÍB 2017. Átta fyrirtæki lækka verðið frá því í vor og átta hækka. Könnunin var framkvæmd miðvikudaginn 11. október.

Spurt var: „Hvað kostar umfelgun og jafnvægisstilling á fjórum 16 tommu álfelgum.“

Beðið var um listaverð án allra afslátta eða sérkjara. Miðað var við dekkjaskipti á Toyota Corolla með hjólastærð 205/55 R16, sem er ein algengasta hjóla- og dekkjastærð fólksbíla á íslenska markaðnum.

Lægsta verðið var að finna hjá Títancar í Kópavogi eða fimm þúsund krónur. Hæsta verðið var að finna hjá N1 um allt land eða 9493 krónur. Munur á hæsta og lægsta verði er því um 90 prósent.

Hægt er að sjá verðin í töflunni hér að neðan frá FÍB.

Könnunin fór fram í gegnum síma og eingöngu var kannað verð á umfelgun og jafnvægisstillingu á fjórum 16 tommu álfelgum. Ekki var lagt mat á gæði þjónustunnar eða mögulegan mun á þjónustunni.

Hinn formlegi vetrardekkjatími gengur í garð þann 1. nóvember. Þá verður löglegt að aka á negldum dekkjum. Það má reikna með að það verður mikið að gera á hjólbarðaverkstæðum eftir mánaðarmót og þegar fyrsti snjórinn fellur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda

Sagðir hafa beitt þekktri brellu – Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum

Slasaður einstaklingur sóttur í Davíðsgjá á Þingvöllum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Laun formanns VR hækkuð verulega

Laun formanns VR hækkuð verulega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“

Ákæran gegn Eimskipi – Héraðssaksóknari telur þetta vera ástæðu þess að skipin voru send á „hættulegasta vinnustað heimsins“