
Samfylkingin telur ástæðu til að óttast það að komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda í Reykjavík muni hann á ný reyna að selja að selja Orkuveituna. Síðast þegar Sjálfstæðismenn voru í meirihluta í borginni seldu þeir hlut borgarinnar í Landsvirkjun og reyndu mikið að selja Orkuveituna. Formaður og varaformaður flokksins tala nú um á landsvísu að selja RARIK og Landsnet. Kosningarnar á laugardaginn snúast því ekki bara um einhverjar lítils háttar breytingar heldur er tekist á um grundvallarstefnur í stjórnmálum. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar:
Eyjan - Kristrún Frostadóttir - 2
Er þetta kannski það sem brennur helst á fólki fyrir þessar kosningar? Eru það leikskólamálin eða?
„Leikskólamálin eru auðvitað mjög háð því hvort að þú sért á þeim stað að vera með ung börn eða jafnvel barnabörn. Við heyrum mikið talað um þjónustu við eldra fólk en svo myndi ég segja að það sé kannski tvennt í viðbót, húsnæðismálin. Þau brenna á fólki. Og þar auðvitað þarf ríkið að hafa líka eitthvað um það að segja. Við höfum nú kynnt tvo húsnæðispakka en þetta er ekta svona gott dæmi um samvinnu ríkis og sveitarfélaga. Stærsta einstaka húsnæðismálið er að fá flokka við völd sem skilja hlut sveitarfélaga í húsnæðisuppbyggingu. Við erum með sveitarfélag eins og Kópavog þar sem þau hafa veitt núll lóðir á tíu árum í uppbyggingu á húsnæði fyrir fólk sem er á almennum vinnumarkaði en á lægri tekjum. Og þetta er bara mjög skýr pólitísk forgangsröðun. Við sjáum þetta hringinn í kringum landið að þar sem jafnaðarfólk hefur verið við völd hefur verið lögð áhersla á svona uppbyggingu.
Og ég vek líka athygli á því að þetta þýðir ekki bara að þeir sem munu búa nákvæmlega í þessum íbúðum hérna finni fyrir því. Þetta heldur aftur af leiguverði almennt. Þetta er akkeri á markaðnum. Og þetta þá líka hefur áhrif á verðlag á íbúðum almennt í sveitarfélaginu . Þannig að þetta er auðvitað risamál og til dæmis eins og stofnframlög sem ríkið er að leggja til þess að fara í uppbyggingu á þessum íbúðum, þau rata einfaldlega ekki út í sumum sveitarfélögum eins og Kópavogi og annars staðar þar sem þetta hefur ekki verið forgangsatriði.“
Já, það skiptir máli náttúrlega hvaða stefna er og að það sé stefna sem svona er í einhverjum tengslum við raunveruleikann og bara þjóðfélagsgerðina.
„Já, auðvitað eiga samfélög og sveitarfélög og ríkið, það á að vera rekið í þágu allra en við vitum alveg að það er ákveðinn tímapunktur þar sem reynir meira á. Það er fólk sem er með ung börn, það er þegar þú þarft að nýta þér þjónustu til dæmis út af eldra fólki, þegar þú ert að komast út á húsnæðismarkaðinn. Og flestir finna ekkert fyrir kerfinu fyrr en virkilega reynir á. Við í Samfylkingunni höfum bara verið stolt af okkar uppruna, hvaðan við komum sem sósíaldemókratar. Við viljum bara taka ábyrgð hvert á öðru. Við viljum ekki bara vera hópur af einstaklingum, við viljum búa í samfélagi. Og við viljum passa upp á það sem við eigum.
Önnur svona dýnamík í pólitíkinni þar sem mun spila líka mjög sterkt inn núna í Reykjavík, það er til dæmis bara eignarhald á hinum og þessum fyrirtækjum. Þetta er risamál í pólitísku samhengi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í gegnum tíðina átt langa sögu af því að fara í stórfellda eignasölu. Samfylkingin tók nú við brotnu búi í Reykjanesbæ á sínum tíma eftir hrun þar sem var búið að selja nær allar eignir, orku- og veitufyrirtæki samfélagsins. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var síðast við völd hérna í Reykjavík, þá seldu þeir Landsvirkjun.
Og þeir reyndu að selja Orkuveituna, Ólafur. Og ég segi bara, Sjálfstæðisflokkurinn vill selja orkuna okkar. Við sáum nú bara síðasta útspil af hálfu formanns og varaformanns Sjálfstæðisflokksins í landsmálunum þar sem þau töluðu, ég meina, það er ekki einu sinni hægt að búa þetta til en þetta er til á blaði, Ólafur. Þau töluðu um að selja RARIK og Landsnet. Þetta eru fyrirtæki í fákeppni ef ekki í rauninni beinlínis einokunarstöðu.“
Já, er ekki óhætt að segja bara einokunarstöðu?
„Þeir eru í mjög sterkri stöðu þegar kemur að verðlagningu á rafmagni og orku. Það er nýbúið að koma svona útspili á í landsmálunum þannig að þetta er stór hætta núna sem við óttumst í Samfylkingunni að ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í Reykjavík þá muni þeir aftur reyna að selja Orkuveituna . Og það yrði algjörlega í takt við það sem að er verið að fara yfir í landsmálunum. Á meðan við í ríkisstjórninni höfum verið að fara í öfuga átt, við höfum verið að leggja mikla áherslu á eignarhald á auðlindunum. Við fórum náttúrlega í, eins og frægt er orðið, stórt mál síðasta sumar í veiðigjöldunum.
Og við erum núna að vinna í frumvarpi þar sem við erum að reyna að auka svona rentuna eða fjármagnið sem rennur til nærsamfélagsins af orkumannvirkjum. Þannig að þarna sér maður bara svart á hvítu hvað sveitarfélagapólitík getur verið, hún er bara mjög hörð, hún getur verið mjög afgerandi þannig að þetta snýst ekki bara um svona lítils háttar breytingar.“