fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Helgi segir Sjálfstæðisflokkinn standa fyrir gisinni úthverfastefnu sem valdi umferðartöfum

Eyjan
Þriðjudaginn 12. maí 2026 19:30

Helgi Gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur, sem vanalega tjáir sig sem hlutlaus sérfræðingur um þann málaflokk, hefur nú lagt orð í belg í baráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar um næstu helgi. Helgi varar við stefnu Sjálfstæðisflokksins, þar sem Borgarlínu er hafnað, heitið frekari uppbyggingu í útjöðrum höfuðborgarsvæðsins og staðinn vörður um veru Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni.

Helgi Gunnlaugsson segir að gisin úthverfastefna Sjálfstæðisflokksins frá fyrri tíð hafi leitt yfir borgina það ástand umferðartafa sem nú ríki. Mikilvægt sé að koma á samræmdri byggðastefnu fyrir allt höfuðborgarsvæðið.

Helgi ritar eftirfarandi pistil um málið á Facebook-síðu sinni:

„X-D stefnir í stærsta sigur sinn í Rvík frá því á velmektarárunum í byrjun aldarinnar, fá amk þriðjung atkvæða og með Viðreisn er stórveldistíminn mættur aftur. Kosningastrategían vel heppnuð og ágeng, STRAX í lykilhlutverki til að takast á við þéttingu byggðar og umferðaröngþveiti. Þúsundir íbúða áformaðar í Keldnalandinu, Úlfarsárdal og Mosfellsbær byggir Blikastaði með þúsundum íbúða – Geldinganes í sjónmáli líka.

Ártúnsbrekkan sprungin núna, STRAX í dag annar því þessari fjölgun ekki og alls ekki ef hik kemur á Borgarlínuna sem nýtur lítils stuðnings í einmitt þessum jaðarbyggðum.

Ekki má hreyfa við heilögu kúnni í Vatnsmýrinni eða minnka flugvöllinn þótt alþjóðaflugið sé farið og innanlandsflugið berjist í bökkum.

Úthverfastefnan gisna sem sköpuð var á 20. öld og er bakvið umferðartafirnar í dag verður því aftur í öndvegi sem aldrei fyrr. STRAX verður því örugglega teygjanlegt hugtak þegar XD tekur aftur við stjórn Rvíkur með Viðreisn + e-ir aðrir einsog á þarf að halda eftir kosningar.

Löngu er kominn tími á samræmda byggðastefnu alls höfuðborgarsvæðisins í anda samgöngusáttmálans til að takast á við hreint makalausa fjölgun íbúa – við höfum byggt upp sirka 5-6 Akureyri bara á þessari öld. Ótrúlegur kraftur. Sundrað svæði leysir ekki þennan vanda svo vel sé.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir