fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Eyjan

Kristrún Frostadóttir: Barnaskatturinn í Kópavogi árás á konur, tekjulægri og ungt fólk

Eyjan
Þriðjudaginn 12. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnaskatturinn í Kópavogi er bakslag fyrir jafnréttisbaráttu kvenna enda hafa kannanir sýnt að mikill meirihluti þeirra sem hafa minnkað við sig vinnu vegna stytts leikskóladags eru konur. Skatturinn er líka árás á þá tekjulægri sem ekki hafa sveigjanleika með vinnutíma og ekki síst ungt fólk. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér má hlusta á brot úr þættinum:

Eyjan - Kristrún Frostadóttir-1
play-sharp-fill

Eyjan - Kristrún Frostadóttir-1

Sveitarstjórnarkosningar, endaspretturinn hafinn, kosið á laugardag. Hvernig kemur Samfylkingin inn í þessar kosningar?

„Þetta eru auðvitað gríðarlega mikilvægar kosningar. Sveitarstjórnarmál fá oft svona minni athygli en hérna landsmálin og ég hef nú oft sagt það að það er svolítið svona ráðherrablæti í landinu, fólk er mjög upptekið af ráðherrum ríkisstjórna þegar raunin er sú að mikið af svona viðkvæmustu og kannski þeim málum sem snerta fólk helst í daglegu lífi eiga sér stað í gegnum sveitarstjórnarpólitík. Það liggur auðvitað misjafnt eftir sveitarfélögum hversu mikil pólitík fólk upplifir að sé í því, en það er þannig að þetta eru mjög pólitískar ákvarðanir sem geta átt sér stað eftir því hvernig flokkar eru við völd. Við auðvitað fórum í þá vegferð fyrir nokkrum árum síðan að breyta Samfylkingunni og erum núna við stjórn landsmálanna af því við lögðum svona á borðið ákveðnar áherslur þar sem við vorum að fókusa á þessi kjarnamál, aðeins að reyna að greina aðalatriði frá aukaatriðum og núna erum við að gera það sama í sveitarstjórnarmálunum.

Við erum búin að fjölga mjög framboðum hringinn í kringum landið og það eru nýir oddvitar í svo til öllum framboðum. Það er held ég bara varaformaðurinn, Guðmundur Árni, sem er aftur í framboði og auðvitað víða er þetta reynslumikið fólk, jafnvel fólk sem hefur verið í sveitarstjórnum, en það er nýtt fólk og þetta er fólk sem hefur hérna líka verið að tileinka sér þessar nýju áherslur eins og í landsmálunum, þannig að ég hlakka bara mikið til að sjá hvað kemur út úr þessu.“

Já, það er náttúrlega, eins og þú segir, það er mjög misjafnt milli sveitarfélaga hvort það er einhver pólitík af því yfirleitt eða gjarnan eru þetta nú svona, þetta er nærsamfélagið, þetta er svona það sem að, það sem þarf að gera, þetta er götusópun og fleira slíkt. En það er heilmikil pólitík í þessu hérna í Reykjavík?

„Já, það er reyndar bara afgerandi pólitík í mjög mörgum sveitarfélögum. Og Samfylkingin er núna í þeirri stöðu að bæði höfum við verið að stækka um land allt, eins og kannski hefur komið fram í landsmálunum, en líka bara í svona hérna framboðsmálum. Og við höfum séð að það hefur verið mikið ákall bara í gegnum tíðina eftir jafnaðarmannaflokki, sósíaldemókrataflokki, bæði í landsmálum og í sveitarstjórnum og erum kannski í því færi núna í svolítið fyrsta skipti í langan tíma að geta verið svona breið hvað það varðar. En við höfum náttúrlega aðallega verið að leggja áherslu á í pólitísku línunum að það eru risamál þarna undir.

Byrjum á að tala bara um samvinnu ríkis og sveitarfélaga almennt. Flest af svona þessum viðkvæmustu punktum og málum sem að ganga brösuglega er þar sem að samvinnan er ekki nógu góð. Ég get nefnt sko áherslur ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarheimila þar sem að við erum að helminga biðlistann núna á milli áranna 26 og 27. Og á hinum endanum þarf að vera heimaþjónusta, heimahjúkrun á vegum sveitarfélaganna. Og þetta er eitthvað sem við þurfum að sjá áherslur í og getur verið bara heilmikil pólitík í forgangsröðun í því. Við erum auðvitað líka að tala mikið fyrir því að lækka kostnað barnafólks og hefur nú kannski ekki farið fram hjá neinum, barnaskatturinn í Kópavogi, sem við höfum lagt áherslu á að sé svona víti til varnaðar um hvað getur gerst þegar Sjálfstæðisflokkurinn kemur til valda.

Ég var nú bara hérna í Þverbrekkunni í Kópavogi, fyrir helgi eða um helgina, að tala við fólk sem er þar með tvö lítil börn og segir að það taki rosalega í eftir þessar gjaldahækkanir. Það hafi stökkbreyst útgjöld heimilisins og það var nú bara einn maður sem ég ræddi við sem var smiður sem sagði: „Ég er ekkert með bakland, það er enginn sem getur sótt börnin mín fyrr. Ég er að niðurgreiða ókeypis leikskóla fyrir þá sem geta verið með sex tíma á dag og ég er að taka allt þetta á mig.“

Er þetta ekki akkúrat vandamálið, að þetta nýtist tilteknum hópum en ekki kannski þeim sem mest þurfa á því að halda, kannski síst geta borgað og hafa minnsta sveigjanleikann með vinnu?

„Fólk sem er tekjulágt og er í vinnu þar sem það vinnur vaktir og er ekki með sveigjanlegan dagvinnutíma, ég myndi líka segja bara ungt fólk sem er kannski að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og er ekki komið á þann stað á vinnustaðnum sínum að geta bara stokkið endilega frá, er kannski að vinna sig upp. Þetta er um hálf milljón á ári, þetta eru alveg ofboðslega háar upphæðir. Og ég sýni því alveg skilning að í einhverjum tilvikum og eiginlega ég myndi nú bara segja að leikskólastigið heilt yfir, það þarf að fjárfesta meira í því og þess vegna höfum við talað fyrir því að ríkið komi þarna inn. Ef við lögfestum þennan rétt til leikskólapláss eins og á öllum hinum Norðurlöndunum, þá skapast svona ákveðin kvöð eða að minnsta kosti skylda hjá ríkinu að sinna þessu stigi. En ef sveitarfélögin vilja setja meira fjármagn í þetta eða reyna að stýra einhvern veginn aðgenginu, þá á auðvitað bara samfélagið allt að taka þátt í því, ekki bara þeir sem eru með börnin.

Maður getur séð þessa sögu líka annars staðar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd. Ég var nú bara í Fjarðabyggð líka í síðustu viku. Og þar sjáum við nákvæmlega sömu þróun, þar var farið í svona svipað módel og í Kópavogi. Og þau fengu könnun sem tók til foreldranna á svæðinu þar sem kemur í ljós að yfirgnæfandi hluti þeirra sem hefur minnkað við sig vinnu vegna þessa eru konur. Og það er bara verið að gjörbreyta líka þróun jafnréttismála í landinu með þessu og verið að skapa mjög hættulegt fordæmi að mínu mati. Þannig að þetta er auðvitað, þetta er bara hrein pólitík, Ólafur. Þetta er bara mjög hrein og skýr pólitík og ekki í takt við það sem við viljum sjá í Samfylkingunni.“

Nei, og þetta er ákveðið bakslag.

„Þetta er bakslag. Ég skil alveg, ég sjálf er með börn á, ég er með barn á leikskóla og nýbúin að vera með tvö börn á leikskóla og ég veit alveg að fólk getur verið ósátt við það að búa við skerta daga og það þarf að taka á því. Og það er hægt að gera breytingar á gjaldskrám eins og voru gerðar hér aðeins í Reykjavík og til dæmis í Mosfellsbæ eru þeir með skráningardaga sem að fólk greiðir samt ekki fyrir. Þannig að það er hægt að taka á þessu án þess að fara í svona miklar álögur.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt

Óttar Guðmundsson skrifar: Hjartað mitt
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri

Segir að Heiða hyggi á hefndir gegn Pétri
Hide picture