
Fjögur systkini sem voru hluti af „leynifjölskyldu“ tónlistarmannsins Michaels Jackson afhjúpuðu í viðtali á sunnudag hvernig Jackson hefði með ógeðfelldum hætti groomað þau og misnotað kynferðislega sem börn.
Jackson lést 25. júní árið 2009, fimmtugur að aldri.
Cascio systkinin settist niður með fréttaskýringaþættinum 60 Minutes Australia og lýstu því hvernig Jackson á að hafa misnotað þau öll kynferðislega sem börn og útvegað þeim mikið magn af fíkniefnum og áfengi eftir að hafa tælt fjölskyldu þeirra með rausnarlegum gjöfum og frægð sinni.

Systkinin fjögur höfðuðu mál í febrúar og sögðu að Jackson væri raðkynferðisbrotamaður sem misnotaði fórnarlömb kynferðislega á heimilum Elizabeth Taylor og Elton John.
„Hann er skrímsli, hann er illur, það sem hann gerði var illt. Og hann hefur blekkt allan heiminn til að halda að hann sé þessi saklausa, fullkomna manneskja, en hann er það ekki,“ sagði Dominic Cascio.
Faðir Cascio-systkinanna, Dominic eldri, hitti Jackson á níunda áratugnum þegar Dominic vann á Helmsley Palace Hotel í New York borg. Hann varð fljótt hluti af innsta hring Jackson og fjölskylda hans eyddi oft fríum á Neverland Ranch og ferðaðist um heiminn með tónlistarmanninum.
Eddie, 43 ára, minnist þess að hann hefði hitt Jackson, þegar Eddie var aðeins tveggja ára gamall, á þeim tíma þegar Jackson byrjaði að heimsækja heimili fjölskyldunnar í New York seint á kvöldin án þess að tilkynna komu sína á undan.
Í heimamyndböndum sem sýnd voru í þættinum má sjá smpansa Jacksons, Bubbles, sem heillaði börnin í einni heimsókn.
Jackson heillaði systkinin, Eddie, Aldo, Dominic og Marie-Nicole, með því að fara með þau í lúxusferðir í einkaflugvél sinni, í tónleikaferðalög með honum og í heimsóknir til erlenda diplómata.
Lúxusgjafirnar frá stórstjörnunni voru hins vegar aðeins yfirskin fyrir áratuga meint kynferðisofbeldi og misnotkun sem fylgdi í kjölfarið, sögðu systkinin.
„Foreldrar mínir voru ungir. Að þau skyldu eiga svona fræga manneskju sem vildi vera vinur þeirra … þeim fannst þau svo sannarlega sérstök, og við líka,“ sagði Eddie. „Hann lét okkur líða eins og við værum fjölskylda hans, börnin hans, allt hans.“

Systkinin fjögur, Cascio, héldu því fram að misnotkunarherferðin hefði átt sér stað í yfir 25 ár, þar á meðal á Neverland-búgarðinum þar sem Jackson bjó og á heimsferðum hans.
„Þegar þú átt stærstu stórstjörnu í heimi á níunda áratugnum sem vill vera vinur þinn, þá ertu viðkvæmur og auðvelt að stjórna,“ sagði Dominic.

Eddie hélt því fram að Jackson hefði byrjað að misnota hann þegar hann var 11 ára á Dangerous tónleikaferðalaginuárið 1993, misnotað hann á hverju kvöldi á meðan þeir tveir deildu rúmi og fram á fullorðinsár. „Þá fór heimurinn minn að breytast,“ hélt hann fram. „Við vorum á tónleikaferðalagi og þá fór Michael að nálgast mig og byrjaði að nudda mér á fæturna. Ég sat í kjöltu hans og þá átti fyrsti kossinn sér stað, þar sem hann kyssti mig á varirnar.“
Nokkur systkinanna sögðu að Jackson hefði einnig látið þau taka þátt í óþægilegum leik sem kallaðist „booty rumble“.
„Hann lagði mig ofan á sig með kynfærin mín upp við hans. Á meðan hann hristist, ýtti hann sér eins og upp að mér,“ sagði Dominic um þennan svokallaða leik.

„Hann drakk einnig þvagið mitt og sagði við mig: „Svona elska ég þig.“ Ég er kannski 12 ára á þeim tíma. Ég er barn sem sér þennan mann gera þetta,“ bætti Dominic við. „Og ég sagði: „Ó, ég held að hann elski mig virkilega. Ég meina, ég myndi aldrei vilja drekka þvag einhvers, svo hann hlýtur að elska mig virkilega.“
Marie-Nicole sagði að Jackson hefði látið hana afklæðast þegar hún var 12 ára og fróað sér á meðan hann horfði á hana.
Aldo, yngstur systkinanna, hélt því fram að Jackson hefði byrjað að misnota hann á meðan þeir lágu saman í rúminu og spiluðu tölvuleiki. „Hann dró bara niður stuttbuxurnar mínar og byrjaði að veita mér munnmök. Og hann sagði strax: Finnst þér þetta ekki gott? Sjáðu, ég elska þig. Ég elska þig,“ hélt Aldo fram.

Systkinin bættu við að Jackson hefði gefið þeim lyfseðilsskyld lyf og áfengi á unga aldri, þar á meðal „Jesúsdjús“, sem var vín, og „Disneydjús“, sem var sterkt áfengi.
„Hann gaf mér Xanax og Vicodin þegar ég var 11 ára gömul og sagði mér að ég myndi fljóta og að ég myndi elska það,“ hélt Marie-Nicole fram.
Systkinin fullyrtu einnig að Jackson hefði alið með þeim ótta með því að þjálfa þau fyrir yfirheyrslur lögreglu og foreldra sem hefði valdið því að börnin voru staðföst í þeirri trú að ekkert óeðlilegt væri í framkomu tónlistarmannsins gagnvart þeim.

Marty Singer, lögmaður sem starfar fyrir dánarbú Jacksons, sagði í yfirlýsingu við 60 Minutes Australia að ásakanir Cascios-systkinanna væru einungis „peningaþjófnaður“.
„Það er athyglisvert að þessar ásakanir eru gerðar meira en 15 árum eftir andlát Jacksons og því er engin hætta á að vera kærð fyrir meiðyrði,“ sagði Singer. „Því miður, eftir dauða hans, rétt eins og meðan hann lifði, halda hæfileikar og velgengni Jackson áfram að gera hann að skotmarki.“