fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jose Mourinho er samkvæmt spænskum miðlum við það að taka aftur við Real Madrid og eitt af fyrstu stóru markmiðunum hans á félagaskiptamarkaðnum er að fá Rodri frá Manchester City.

Florentino Perez forseti félagsins er sagður tilbúinn að gera allt til að landa spænska miðjumanninum og Mourinho er sammmála því að það sé mikilvægt skref í enduruppbyggingu liðsins.

Real Madrid hefurs skort stöðugleika á tímabilinu og vill fá inn mann sem getur stýrt hlutunum frá miðsvæðinu. Þar myndi Rodri reynast frábær.

Rodri, sem er 29 ára gamall, á rúmt ár eftir af samningi sínum við City sem gæti þýtt að félagið skoði að selja hann í sumar, til að missa hann ekki frítt eftir næstu leiktíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt