fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Ómerkileg pólitík á lokaspretti – Hildur hefur gefið upp boltann – kallar eftir viðbrögðum

Eyjan
Miðvikudaginn 13. maí 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn hefur á síðari árum valið að kasta skítabombum inn á sviðið dagana fyrir kosningar. Það er ekkert nýtt. Vegna þessa hefur orðið til fyrirbæri innan flokksins sem kallast skrímsladeild. Hún hefur verið virk um árabil en þeir sem mest hafa komið þar við sögu eru Björn Bjarnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Andrés Magnússon. Þeir hafa allir „rétta“ hugarfarið til að sinna þessum skítverkum í aðdraganda kosninga. Minni spámenn hafa svo fengið að hjálpa til eins og Stefán Einar Stefánsson og síðan enn yngri menn sem er verið að ala upp til að taka við keflinu þegar öldungarnir geta ekki meira.

Hildur Björnsdóttir sem fær nú í annað og síðara skiptið að reyna sig við oddvitasætið hjá flokknum í borginni virðist vera dugleg að tileinka sér móral öldunganna. Hún hefur óhikað gengið fram í aðdraganda kosninga og varpað ómerkilegum skítabombum. Ein þeirra sprakk vandræðalega í andlit hennar þegar á daginn kom að að staðfest er að hún ein kallaði eftir upplýsingum um greiðslukort borgarstjóra, sá að ekkert var merkilegt í því svari sem hún fékk, geymdi svarið og lak því síðan 99 dögum síðar – einmitt viku fyrir kosningar. Markmiðið var að rugla kjósendur í rýminu og fá frambjóðendur til að eyða dýrmætum tíma í að svara þvælunni. Þetta er alveg samkvæmt leiðbeiningum skrímsladeildarinnar. En ekki gott veganesti fyrir miðaldra stjórnmálamann sem býður þess að slá í gegn. Hver vill vinna með óheilindafólki af þessu tagi?

Orðið á götunni er að skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins sé á bak við fleiri ómerkileg útspil á síðustu dögum kosningabaráttunnar. Hver hannaði endurtekningu á 20 mánaða gamalli „frétt“ RÚV um uppgjör borgar og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við olíufélögin í þeim tilgangi að bæta umhverfið og draga úr mengun? Þarna var um merkilegt uppgjör allra olíufélaganna að ræða við fimm sveitarfélög sem tók mörg ár að ná niðurstöðu um. María Sigrún Hilmarsdóttir, Sjálfstæðiskona, fékk einhverra hluta vegna mikinn áhuga á þessu og reyndi að stilla því upp sem sukki innan Reykjavíkurborgar. Ekki er um neitt sukk að ræða og öll sveitarfélögin komu að málinu. En henni líðst nú að fá að endurtaka í sjónvarpsfréttum alla þvæluna. Er RÚV stjórnlaust?

Þá hefur verið reynt að blása upp að nýju umræðu um byggingu í borginni sem fengið hefur nafnið „Gímaldið.“ Það er að sönnu umdeilt mál. En vert er að hafa í huga að heimildir til byggingar hússins fóru í gegnum allt kerfi ákvarðana hjá borginni, m.a. þar sem Hildur og aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins áttu sæti og greiddu atkvæði með framvindu málsins. En nú á að kenna meirihlutanum einum um það sem úrskeiðis fór!

Orðið á götunni er að skrímsladeildin muni vafalaust spila fleiri skítafýlubombum út næstu þrjá daga miðað við fyrri reynslu. En hefur það skilað árangri? Nei, það er svo fyndið eins og staða flokksins sýnir. Í ljósi þeirrar reynslu ættu andstæðingar Sjálfstæðisflokksins ekki að fara út í að draga upp vandræðalega stöðu sumra frambjóðenda flokksins sem telur sér sæma að ausa skít yfir keppinautana.

Orðið á götunni er að andstæðingar Sjálfstæðisflokksins græði ekkert á því að draga upp sannar sögur um kynferðislegt ofbeldi eins frambjóðandans sem leiddi til brottrekstrar af tveimur vinnustöðum, eða um vandræðaleg einkamál, viðkvæmt heilsufar, ólöglegar upptökur sem voru á leið til lögreglu, þríklofinn borgarstjórnarflokk á þessu kjörtímabili og brottför þriggja af sjö efstu mönnum á lista flokksins síðast. Sumt af þessu er liðin tíð – en ekki allt. Alls ekki!

Með hverjum ætlar óheilindafólk að mynda meirihluta? Sporin hræða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir