fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Miðflokksarmurinn vill Ásdísi bæjarstjóra sem formann í stað Guðrúnar – tíðinda að vænta fyrir landsfund 2027

Eyjan
Mánudaginn 11. maí 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Gunnarsson, Jens Garðar Helgason og fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem taldir eru fremstir í Miðflokksarmi flokksins fara ekki lengur dult með þá skoðun sína að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, ráði ekki við hlutverk sitt og verði að víkja sem fyrst til þess að flokkurinn eigi möguleika á að ná viðspyrnu og eflast á ný eftir samfellt hnignunarskeið frá hruni árið 2008. Miðflokksarmurinn hefur leitað logandi ljósi að hugsanlegum formanni, meðal annars utan stjórnmálanna, en engan fundið sem gæti hugsað sér að halda út á þann hála ís sem ný formannskosning í flokknum hlyti að verða. Þeir Jón Gunnarsson, Hildur Sverrisdóttir og Jens Garðar Helgason telja sig nú hafa fundið einu manneskjuna í flokknum sem gæti fellt Guðrúnu á næsta landsfundi og mögulega blásið einhverju lífi í flokkinn.

Hér er um að ræða Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi. Hún hefur gríðarlegan pólitískan metnað og talið er að hún hafi þegar sett stefnuna á að ná efsta sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur kjördæmi sem nú er höfuðlaus her eftir að bæði Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hafa vikið úr tveimur efstu sætunum á lista flokksins frá síðustu kosningum. Enginn af þeim þingmönnum sem eftir eru í kjördæminu eru líklegir til að geta náð til kjósenda.

Orðið á götunni er að Ásdís Kristjánsdóttir muni ekki staldra lengi við í bæjarmálum Kópavogs því hún stefni ótrauð á landsmálin. Það þurfa kjósendur í Kópavogi að hafa í huga ef þeir velja Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum á laugardaginn kemur. Ásdís stefnir á þing í næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi eftir tvö og hálft ár. Taki hún hvatningu Miðflokksarms Sjálfstæðisflokksins um að skora Guðrúnu Hafsteinsdóttur á hólm í formannskjöri á næsta ári, þá gæti hún látið af þátttöku í bæjarmálum Kópavogs strax á næsta ári því það þykir fullt starf að vera formaður í Sjálfstæðisflokknum sem á í vök að verjast í valdalausum minnihluta á Alþingi.

Ásdís tók við forystu í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi fyrir fjórum árum. Flokkurinn fékk þá 33 prósent fylgi í þeim kosningum, fjóra bæjarfulltrúa kjörna en tapaði einum frá kosningunum árið 2018. Sjálfstæðisflokkurinn myndaði meirihluta með Framsókn sem fékk tvo menn kjörna og Ásdís varð bæjarstjóri. Það hefur gustað um hana og hún er umdeild en þykir drífa í málum þegar aðstæður leyfa. Hún stefnir ótrauð á að halda stöðu bæjarstjóra eftir komandi kosningar og þá yrði bæjarstjórastóllinn stökkpallur inn í landsmálin. Áhugavert verður að fylgjast með úrslitum kosninga í Kópavogi í ljósi þess að framtíð Ásdísar í stjórnmálum næstu árin gæti ráðist af því hvernig Sjálfstæðisflokknum vegnar þar og hvort hún heldur stöðu sinni sem bæjarstjóri. Hverfi hún af vettvangi bæjarstjórnar er mikilvægt fyrir kjósendur flokksins að gera sér ljóst hver tæki við forystunni af Ásdísi Kristjánsdóttur sem er núna óumdeildur leiðtogi flokksins í Kópavogi.

Kópavogur telur 40 þúsund íbúa, næstur að stærð á eftir höfuðborginni. Það skiptir því miklu máli hvernig tekst til í bænum varðandi skipan bæjarstjórnar. Skoðanakannanir hafa hingað til verið misvísandi og ýmist sýnt að Sjálfstæðisflokkurinn tapi nokkru fylgi en haldi þó fjórum bæjarfulltrúum eða að flokkurinn bæti við sig fylgi og nái jafnvel fimmta manninum sem tapaðist í síðustu kosningum.

Komi til formannskosninga í Sjálfstæðisflokknum, eins og Miðflokksarmur flokksins stefnir að, verður því tæplega á móti mælt að Ásdís Kristjánsdóttir er frambærilegasti frambjóðandinn sem völ er á. Innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins finnst enginn hæfur stjórnmálamaður til að gegna formennsku í flokknum og Ásdís er öflugust allra frambjóðenda flokksins til sveitarstjórna eins og staðan er nú. Því kemur ekki á óvart að athyglin beinist að henni.

Orðið á götunni er að Jón Gunnarsson sé harðasti andstæðingur Guðrúnar Hafsteinsdóttur í flokknum og fari ekki leynt með vantraust sitt á henni. Jens Garðar Helgason er einnig mjög ósáttur rétt eins og Hildur Sverrisdóttir sem var sett af sem formaður þingflokksins og unir því illa. Innan skamms snýr Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir heim frá Bandaríkjunum þar sem hún hefur sótt námskeið við háskóla á undanförnum mánuðum. Hún tekur þá sæti sitt á Alþingi að nýju. Áslaug Arna fyrirgefur Guðrúnu Hafsteinsdóttur ekki að hafa skemmt fyrir sér drauminn um að verða formaður Sjálfstæðisflokksins þannig að hún fyllir auðveldlega andófsflokkinn með Jóni Gunnarssyni og félögum í Miðflokksarminum.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður trúlega í mars á næsta ári þó að unnt sé að fresta honum fram á haust. Undirbúningur undir mótframboð til formanns gæti því hafist seint á þessu ári og mun væntanlega ekki fara hljótt.

Orðið á götunni er að Sjálfstæðisflokkurinn sé fæddur undir ófriðarstjörnu sem nú hefur skinið samfleytt í 60 ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki

Orðið á götunni: Veifiskatar og vindhanar vaða uppi í Miðflokki og Sjálfstæðisflokki
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já

Thomas Möller skrifar: NEI er stærra en já
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks

Björn Jón skrifar: Mikil er skömm borgarstjórnar í máli séra Friðriks