fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Hagar taka þátt í uppbyggingu í Þorlákshöfn og Ölfusi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. maí 2026 14:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagar hf. og dótturfélög þess, Bónus og Olís, hafa staðfest áform um uppbyggingu nýrrar starfsemi í Þorlákshöfn á næstu misserum. Fyrirhugað er að opna nýja Bónusmatvöruverslun og Olís sjálfsafgreiðslustöð á svæðinu, í takt við hraða þróun og vöxt í sveitarfélaginu.

Bónus mun opna nýja matvöruverslun miðsvæðis í Ölfusi, nærri nýrri íbúabyggð við gatnamót Ölfusbrautar og Hafnarvegar. Verslunin verður í samræmi við nýjustu verslanir keðjunnar að útliti og vöruúrvali og mun þjóna ört vaxandi hópi íbúa á svæðinu. Ný verslun mun bjóða upp á lágt verðlag og gott vöruúrval eins Bónus eru þekkt fyrir um allt land.

Þá mun Olís opna nýja sjálfsafgreiðslustöð í Þorlákshöfn, með það að markmiði að þjóna bæði einstaklingum og vaxandi starfsemi í iðnaði og þungaflutningum á svæðinu.

Þorlákshöfn hefur þróast í eina helstu þjónustu- og iðnaðarmiðstöð á suðvesturhorni landsins og er eftirspurn eftir faglegri þjónustu við atvinnurekstur á svæðinu vaxandi.

Sveitarfélagið Ölfus hefur verið í örum vexti á undanförnum árum og hefur íbúum fjölgað um tæp 30% frá árinu 2018. Samhliða þessari þróun hefur atvinnustarfsemi á svæðinu aukist verulega og hafnarstarfsemi styrkst, en nú eru um 320 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn samhliða öflugri atvinnuuppbyggingu. Eftirspurn eftir fjölbreyttari þjónustu hefur því farið vaxandi.

„Uppbygging í Þorlákshöfn og Ölfusi hefur verið kröftug og farsæl og við gerum ráð fyrir að svo verði áfram. Hjá Högum sjáum við mikil tækifæri í að þjóna ört vaxandi hópi íbúa bæjarins og nágrannasveita um dagvöru og eldsneyti í heimabyggð og að sama skapi erum við spennt fyrir því að styðja við farsæla uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga hf.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir að  aukin þjónusta sé lykilatriði fyrir ört vaxandi samfélag í Þorlákshöfn. „Ný dagvöruverslun mun bæta verulega aðgengi íbúa að daglegum nauðsynjum og styðja við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Á næstu misserum mun miðbærinn einnig taka á sig skýrari mynd með aukinni þjónustu. Þorlákshöfn er því að taka skref úr þorpi í bæ,“ segir Elliði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir